
Kærunefnd húsamála hefur úrskurðað að kona sem leigði íbúð af ónefndu fyrirtæki skuli greiða 250.000 krónur í leigubætur vegna ágústmánaðar 2025. Jafnframt var kröfu fyrirtækisins um rúmlega 230.000 króna skaðabætur hafnað.
Málinu lauk með úrskurði kærunefndar 24. september 2026. Hvorki konan né fyrirtækið sem leigði henni íbúðina eru nafngreind í úrskurðinum.
Konan hafði gert tímabundinn leigusamning um íbúðina frá 15. nóvember 2024 til 30. nóvember 2025. Hún óskaði hins vegar eftir því að losna fyrr undan samningnum og flutti úr íbúðinni 5. ágúst 2025.
Fyrirtækið hélt því fram að samkomulag hefði náðst um að konan gæti lokið leigunni 31. ágúst gegn greiðslu leigu fyrir þann mánuð. Konan taldi hins vegar að samkomulagið hefði verið á þann veg að hún gæti flutt út eins fljótt og auðið væri.
Kærunefndin taldi konunni ekki hafa tekist að sanna þá málsástæðu og var henni því gert að greiða 250.000 krónur í leigubætur.
Fyrirtækið krafðist einnig 221.040 króna vegna málningarvinnu og efnis og 10.395 króna vegna skemmdrar salernissetu.
Þeim kröfum hafnaði nefndin. Ekki lá fyrir sameiginleg ástandsúttekt frá upphafi eða lokum leigutímans og taldi nefndin fyrirtækið ekki hafa sýnt fram á að ástand veggja hefði versnað umfram eðlilegt slit. Þá hefði heldur ekki verið sannað að skemmdir á salernissetu mætti rekja til vanrækslu eða óvarlegrar umgengni konunnar.
Auður Björg Jónsdóttir, Þorvaldur Hauksson og Eyþór Rafn Þórhallsson skipuðu kærunefndina í málinu.
