1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

3
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

4
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

5
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

6
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

7
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

8
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

9
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

10
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Til baka

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

Fyrirtækið hafði keypt flug fyrir tólf starfsmenn sem héldu til San Francisco

Bogi Nils Bogason
Bogi Nils BogasonEr forstjóri Icelandair
Mynd: Aðsend

Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað Icelandair af rúmlega 1,2 milljóna króna kröfu Ljónsstaða ehf. vegna flugröskunar sem varð í árshátíðarferð starfsmanna fyrirtækisins til San Francisco árið 2019. Ljónsstöðum var jafnframt gert að greiða Icelandair 800 þúsund krónur í málskostnað en fyrirtækið sérhæfir sig í bílaviðgerðum.

Fyrirtækið hafði keypt flug fyrir tólf starfsmenn sem héldu til San Francisco í byrjun nóvember 2019. Heimflug hópsins 11. nóvember var fellt niður vegna veðurs og daginn eftir reyndist flugvélin fullbókuð. Fyrirtækið þurfti því að greiða fyrir gistingu og uppihald starfsmannanna í tvo sólarhringa auk þess sem þeir komust ekki til vinnu á tilsettum tíma.

Í janúar 2020 viðurkenndi Icelandair bótaskyldu vegna röskunarinnar og bauð 600 evrur í bætur fyrir hvern farþega, samtals 7.200 evrur. Einnig var boðið upp á gjafabréf að verðmæti 780 evrur fyrir hvern farþega.

Ljónsstaðir óskuðu eftir peningagreiðslu auk endurgreiðslu útlagðs kostnaðar en greiðslan fór aldrei fram. Fyrirtækið hafði næst samband við Icelandair árið 2023 og kvað Covid-faraldurinn meðal annars hafa orðið þess valdandi að málið féll niður á milli.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að krafa Ljónsstaða hefði verið fyrnd þegar málið var höfðað í janúar 2026. Samkvæmt þágildandi lögum gilti tveggja ára fyrningarfrestur og varð fyrningu aðeins slitið með málshöfðun.

Ljónsstaðir hefðu því þurft að höfða mál fyrir 14. nóvember 2021. Viðurkenning Icelandair á bótaskyldu breytti því ekki og var félagið því sýknað af kröfunni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Loka auglýsingu