
Mál hefur verið höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjaness þar sem þess er krafist að karlmaður verði með dómi viðurkenndur faðir drengs sem fæddist fyrir nokkrum árum. Jafnframt er gerð krafa um að manninum verði gert að greiða einfalt meðlag með barninu frá dómsuppsögu þar til það nær 18 ára aldri.
Samkvæmt stefnunni var hafnfirsk móðir barnsins í sambandi við manninn á getnaðartíma drengsins. Þar kemur fram að sambandinu hafi lokið á meðan konan var barnshafandi. Hún heldur því fram að heimilisofbeldi, vímuefnaneysla mannsins og erfiðar fjárhagslegar aðstæður hafi haft áhrif á sambandsslitin.
Drengurinn er sagður ófeðraður þar sem móðir hans var hvorki í hjúskap né skráðri sambúð þegar hann fæddist. Maðurinn sem móðirin telur vera föður barnsins hefur samkvæmt stefnunni ekki gengist við faðerninu og ekkert lagt til framfærslu drengsins.
Málið er höfðað á grundvelli barnalaga og er meðal annars vísað til réttar barns til að þekkja báða foreldra sína og njóta framfærslu þeirra.
Ekki hefur tekist að hafa uppi á manninum og því er stefnan birt í Lögbirtingablaðinu. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness 25. nóvember.