
Karlmaður, fæddur árið 1995, hefur verið ákærður fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot eftir að hafa tekið strætóbifreið í Garðabæ án heimildar.
Samkvæmt ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er manninum gefið að sök að hafa tekið strætóbifreið við Vífilsstaði föstudaginn 27. mars síðastliðinn.
Maðurinn er sagður hafa ekið bifreiðinni vestur Reykjanesbraut án tilskilinna ökuréttinda. Þá er hann sakaður um að hafa verið óhæfur til aksturs vegna áhrifa kannabisefna.
Lögregla hafði afskipti af manninum við Austurhraun í Garðabæ og stöðvaði þar aksturinn.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness 10. nóvember. Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er þess krafist að hann verði sviptur ökurétti samkvæmt ákvæðum umferðarlaga.