
Kolbrún Bergþórsdóttir bókmenntarýnir hefur blómstrað sem pistlahöfundur á DV eftir að Haraldur Johannessen ritstjóri rak hana úr starfi á Morgunblaðinu. Greinar hennar hafa vakið mikla athygli og enda gjarnan sem mest lesnar.
Kolbrún nýtur mikillar hylli fyrir dóma sína í Kiljunni þar sem hún hefur starfað frá upphafi þáttarins. Kolbrún var mætt í fyrsta þátt Kiljunnar á þessu hausti og fór á nokkrum kostum þegar Egill Helgason þáttarstjórnandi brá á grín og sagðist vera snobbaður. Kolbrún tók undir með honum og sagðist ekki hafa þorað að nefna það af ótta við að vera rekin. Egill nefndi þá brottrekstur hennar af Mogganum og gaf þá einkunn að þar hefði slæm ákvörðun verið tekin. „Ég segi ekki meira,“ bætti hann svo við. Víst er að margir eru sammála Agli um yfirstjórn Moggans og einstöku blaðamenn þar ...