
HafnarfjörðurMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Hafnarfjarðarbær
Íslenskur maður, fæddur árið 1995, hefur verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot í tveimur aðskildum málum. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness 10. nóvember.
Samkvæmt ákæru er manninum gefið að sök að hafa í júní 2025 haft 23,77 grömm af maríhúana í vörslum sínum á Barónsstíg í Reykjavík. Lögregla fann efnin við leit í tösku á vespu hans.
Í desember sama ár er honum gefið að sök að hafa haft tvo vasahnífa og 4,11 grömm af amfetamíni í vörslum sínum í íbúð í Hafnarfirði. Lögregla fann munina við öryggisleit.
Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku fíkniefnanna og vasahnífanna tveggja sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…