37 ára rakari í Lewisville í Texas kom lögreglu verulega á óvart þegar hann fann 128.514 Bandaríkjadali í reiðufé við hraðbanka og skilaði allri upphæðinni. Um er að ræða jafnvirði rúmlega 15 milljóna íslenskra króna.
Maðurinn, sem hefur óskað eftir nafnleynd, fann peningana ofan á hraðbanka Bank of America við West Main Street þann 3. ágúst. Þar var einnig minni poki sem innihélt 19 ávísanir.
Merkingar á einum pokanna urðu til þess að maðurinn taldi að peningarnir gætu tilheyrt nærliggjandi Chick-fil-A veitingastað. Hann ók því þangað en starfsmaður staðarins kannaðist ekkert við peningana.
Maðurinn hringdi þá í neyðarlínuna og lögreglumenn í Lewisville komu á vettvang og tóku peningana í sína vörslu. Kvittun í pokanum sýndi að þar ættu að vera 128.514 dalir. Lögreglumaður taldi peningana tvisvar og notaði einnig seðlatalningarvél til að staðfesta upphæðina. Ekki vantaði einn einasta dal.
Rannsókn leiddi síðar í ljós að peningarnir tilheyrðu Bank of America. Starfsmaður öryggisfyrirtækisins Brinks hafði fyrir mistök skilið pokann eftir ofan á hraðbankanum eftir að hafa sinnt þjónustu við vélina.
Lögregla fann ekkert sem benti til þess að peningarnir tengdust refsiverðri háttsemi og bankinn fékk þá að lokum afhenta.
Lögreglan í Lewisville hefur lýst yfir mikilli ánægju með heiðarleika mannsins og hyggst heiðra hann. Sjálfur hefur hann hvorki óskað eftir verðlaunum né opinberri athygli vegna málsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir