1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

4
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

5
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

6
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

7
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

8
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

9
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

10
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

Til baka

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum

Þá eru merki um aukinn einmanaleika meðal nemenda í 8. til 10. bekk.

Börn á fjalli
Börn á fjalliMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Stjórnarráðið

Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 benda til þess að líðan grunnskólanema hafi almennt þróast í jákvæða átt undanfarin ár. Á sama tíma vekur aukið einelti meðal yngri nemenda og vaxandi einmanaleiki eldri nemenda áhyggjur.

Rannsóknin var lögð fyrir nemendur í 4. til 10. bekk í vor og tóku 23.881 nemendur úr 153 grunnskólum þátt. Heildarsvarhlutfall var 71,7 prósent.

Hlutfall nemenda sem líður vel í kennslustundum hefur hækkað úr 86 prósentum árið 2024 í 89 prósent árið 2026. Þá meta 62 prósent nemenda í 6. til 10. bekk líf sitt gott, samanborið við 57 prósent árið 2023. Hlutfall þeirra sem upplifa tíða andlega vanlíðan hefur jafnframt lækkað úr 37 í 32 prósent.

Mikill kynjamunur er þó áfram til staðar. Helmingur stúlkna í 10. bekk finnur fyrir að minnsta kosti tveimur einkennum andlegrar vanlíðanar oftar en einu sinni í viku.

Einelti hefur aukist meðal yngri barna. Hlutfall nemenda í 4. og 5. bekk sem segjast hafa orðið fyrir einelti jókst úr 18 prósentum árið 2023 í 22 prósent árið 2026. Þá eru merki um aukinn einmanaleika meðal nemenda í 8. til 10. bekk.

Vímuefnaneysla hefur almennt minnkað. Áfengisneysla, rafrettunotkun og notkun nikótínpúða hefur dregist saman. Hins vegar hafa sígarettureykingar meðal nemenda í 10. bekk aukist úr 2,3 prósentum árið 2024 í 4,6 prósent árið 2026. Einnig hefur hlutfall þeirra sem prófað hafa kannabis hækkað úr 5,7 í 6,5 prósent.

Hægt er nálgast skýrsluna í heild sinni hér

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

„Kieran Hayler neitar þessum ásökunum alfarið og harðlega.“
Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu
Menning

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum
Innlent

Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife
Heimur

Lögreglan rannsakar líkfund á Tenerife

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot
Innlent

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot

Ákærður fyrir að stela strætisvagni
Innlent

Ákærður fyrir að stela strætisvagni

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg
Heimur

Epstein-uppljóstrari sagður hafa framið sjálfsvíg

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Myndir
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun
Innlent

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun

Innlent

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum
Innlent

Einelti hefur aukist meðal yngri barna í grunnskólum

Þá eru merki um aukinn einmanaleika meðal nemenda í 8. til 10. bekk.
Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun
Innlent

Forvitinn um ólæsta bíla og kom með óvenjulega afsökun

Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum
Innlent

Gagnrýnir viðbrögð karlmanna við hópnauðgunarmálinu í Cornell-háskólanum

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot
Innlent

Íslenskur maður ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot

Ákærður fyrir að stela strætisvagni
Innlent

Ákærður fyrir að stela strætisvagni

Loka auglýsingu