
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, starfsmaður Reykjavíkurborgar, gagnrýnir viðbrögð við nýlegu hópnauðgunarmáli við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum og segir málið varpa ljósi á hversu rótgróið kynferðisofbeldi og svokölluð nauðgunarmenning sé í samfélaginu.
Í færslu á Facebook segir Ugla Stefanía frá Cornell-málinu þar sem kona kærði sjö menn fyrir að hafa nauðgað sér á háskólasvæðinu í skipulögðum verknaði en málið hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Hún segir jafnframt að mennirnir hafi meðal annars auglýst „free pussy“ í WhatsApp-hópi með 57 karlmönnum sem hluta af verknaðinum.
Samkvæmt færslu hennar hafi enginn hinna 57 manna tilkynnt málið til lögreglu eða mótmælt því sem var að eiga sér stað.
„Málið er mjög afhjúpandi fyrir hversu stórt vandamál kynferðisofbeldi er, og hversu fáir karlmenn stíga inn þegar á hólminn er komið – og taka beinlínis þátt í ofbeldi í stað þess að stöðva það,“ skrifar Ugla Stefanía.
Hún gagnrýnir jafnframt viðbrögð í kommentakerfum þar sem sumir karlmenn upplifi málið sem árás á sig og karlmenn almennt.
Ugla Stefanía vísar í þessu samhengi til rannsóknar sem hún segir hafa sýnt að karlmenn óttist helst að konur hlæi að þeim, á meðan konur óttist að karlmenn drepi þær.
„Það að karlmenn upplifi ákall til sín að draga aðra karla til ábyrgðar og vera ekki einn af þessum 50 sem gerðu ekkert sem einhverskonar árás er mjög afhjúpandi um hversu rótgróin nauðgunarmenning er í okkar samfélagi,“ skrifar hún.
Hún tekur þó fram að ekki séu allir karlmenn gerendur í kynferðisofbeldi.
„Það eru vissulega ekki allir karlmenn sem nauðga, en það eru alltof margir, og ennþá fleiri sem gera ekkert til að stöðva það. Þar liggur hundurinn grafinn,“ segir Ugla Stefanía að lokum.
