
Átta ára gömul japönsk barnastjarna, Hirata Runa, er látin. Hún var í þjálfun hjá japanska stúlknahópnum DIANNA Project og þótti eiga framtíðina fyrir sér í japönskum skemmtanaiðnaði.
Runa lést þann 25. september síðastliðinn. Í tilkynningu á samfélagsmiðlareikningi hennar kom fram að hún hefði látist á friðsælan hátt.
DIANNA Project greindi síðar frá því að dánarorsökin hefði verið hjartavöðvabólga af völdum inflúensu. Ástandið getur meðal annars komið upp í kjölfar veirusýkinga og í alvarlegum tilfellum haft veruleg áhrif á starfsemi hjartans.
„Við færum öllum aðdáendum sem studdu Runa Hirata og öllum þeim sem veittu henni stuðning okkar innilegustu þakkir,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu DIANNA Project.
Runa hafði komið fram á tónleikum aðeins nokkrum dögum áður en hún lést. Síðasta framkoma hennar var 20. september. Að henni lokinni birti hún skilaboð þar sem hún þakkaði fyrir daginn og sagðist hafa skemmt sér afar vel.
Í kjölfar andláts hennar voru einnig birt þakkarskilaboð á samfélagsmiðlareikningi hennar til annarra listamanna, aðdáenda, umboðsskrifstofunnar og allra þeirra sem höfðu komið að ferli hennar.
