Það verður hægt að gera eitthvað skemmtilegt úr garnafgöngunum sem hafa safnast upp í skúffum og skápum þegar Borgarbókasafnið í Gerðubergi býður upp á ókeypis heklsmiðju í október.
Textílhönnuðurinn Stella Ögmundsdóttir leiðir smiðjuna en hún vinnur nær eingöngu með endurnýtt efni í verkum sínum. Stella útskrifaðist úr textíldeild Myndlistarskólans í Reykjavík árið 2024 og hannar undir nafninu Fözz Studio. Í sköpun hennar fær efniviðurinn gjarnan að ráða ferðinni og gamalt garn og önnur efni fá þannig nýtt líf.
Í smiðjunni geta þátttakendur mætt með alls kyns garnafganga að heiman og lært að hekla einfalda peysu úr því sem annars hefði mögulega legið ónotað áfram í skápnum.
Smiðjan fer fram þrjú miðvikudagskvöld í röð, frá klukkan 18:30 til 20:00, og verður fyrsta kvöldið miðvikudaginn 7. október.
Engin þörf er á að vera flinkur með heklunálina fyrir fram því smiðjan hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa meiri reynslu. Þá kostar ekkert að taka þátt.
Smiðjan er hluti af alþjóðlega verkefninu make a thek sem Borgarbókasafnið í Gerðubergi tekur þátt í til þriggja ára.
Þannig gætu nokkrir gleymdir garnafgangar mögulega orðið að nýrri uppáhaldspeysu áður en veturinn skellur á.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir