1
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

2
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

3
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

4
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

5
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

6
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

7
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

8
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

9
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

10
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Til baka

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

Keflavíkurflugvöllur 2
Keflavíkurflugvöllur
Mynd: Stjórnarráðið

Fimm erlendir ríkisborgarar hafa verið ákærðir í þremur aðskildum málum fyrir peningaþvætti eftir að lögregla lagði hald á háar fjárhæðir í reiðufé í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Um er að ræða fjóra litháíska ríkisborgara og einn marokkóskan ríkisborgara.

Í fyrsta málinu eru tveir litháískir karlmenn ákærðir fyrir að hafa í félagi tekið við samtals 10.755 evrum og 21 þúsund krónum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum. Samkvæmt ákæru gat þeim ekki dulist að peningarnir væru ávinningur af refsiverðum brotum.

Mennirnir voru handteknir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 5. október 2025 þegar þeir voru á leið til Alicante á Spáni. Annar þeirra var með 5.650 evrur og 21 þúsund krónur faldar í farangri sínum en hinn með 5.105 evrur. Saksóknari krefst þess að fjármunirnir verði gerðir upptækir.

Í öðru málinu er marokkóskur karlmaður ákærður fyrir peningaþvætti vegna 608.250 danskra króna sem fundust í farangurstösku hans og veski. Hann var handtekinn við komuna til Keflavíkur frá Nuuk á Grænlandi 5. ágúst 2025 og hugðist halda áfram til Kaupmannahafnar. Samkvæmt ákæru hafði hann tekið við peningunum á Grænlandi frá óþekktum aðila eða aðilum.

Þriðja málið varðar tvær litháískar konur sem eru ákærðar fyrir að hafa tekið við samtals 9.000 evrum. Þær voru handteknar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 26. janúar síðastliðinn þegar þær voru á leið til Varsjár í Póllandi. Önnur var með 4.600 evrur faldar í farangri sínum og hin 4.400 evrur.

Í öllum málunum er þess krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar. Þá krefst ákæruvaldið upptöku alls þess reiðufjár sem lögregla lagði hald á.

Í heildina eru þetta tæpar 15 milljónir króna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innköllun nær til Xpeng G6 og G9 af árgerðunum 2025 og 2026 vegna bilunar í læsingarbúnaði dráttarbeislis.
Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Loka auglýsingu