Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Stefán má loksins gefa blóð aftur

„Það var drullu­svekkjandi“

Stefán Pálsson
Stefán Pálsson Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Vara­borgar­fulltrúinn og sagn­fræðingurinn Stefán Pálsson greinir frá því að hann geti nú hafið blóð­gjafir að nýju, þrettán árum eftir að honum var tilkynnt að hann mætti ekki lengur gefa blóð vegna lyfja­notkunar.

Stefán segir frá reynslu sinni í færslu á samfélags­miðlum. Fyrir þrettán árum hafi hann mætt í Blóð­bankann en verið vísað frá þar sem hann var byrjaður að taka lyf við háum blóð­þrýstingi. Að hans sögn hafi þá verið skráð í móttöku­kerfið að hann mætti aldrei koma aftur.

„Það var drullu­svekkjandi enda var ég mjög ánægður með töluna á blóðgjafa­skírteininu mínu,“ skrifar Stefán.

Í samtali við lækni á dögunum kom hins vegar í ljós að reglunum hefði verið breytt. Stefán hafði því samband við Blóð­bankann þar sem honum var staðfest að hann gæti á næstunni hafið blóð­gjafir að nýju.

Stefán veltir því upp hvort fleiri séu í sambærilegri stöðu og telji sig enn óhæfa til blóð­gjafar vegna eldri reglna.

Færsla hans vakti töluverð viðbrögð og lýstu nokkrir því að þeir hefðu einnig þurft að hætta að gefa blóð vegna lyfja­notkunar. Einn sagðist hafa verið kominn með 55 blóð­gjafir þegar hann hóf töku blóð­þrýstings­lyfja og þurfti í kjölfarið að hætta.

Lögfræðingurinn Ómar Valdimarsson sagði jafnframt frá því að hann hefði lengi gefið blóð reglulega en nýlega verið meinað það vegna lyfsins Tamsulosin, sem meðal annars er notað við góðkynja stækkun blöðru­hálskirtils.

Rithöfundurinn Þórunn Valdimars­dóttir sló hins vegar á létta strengi í umræðunni og skrifaði: „Varla eru blóðmerar svo glaðar að gefa blóð.“

Fleiri tóku undir með Stefáni og sögðust ætla að kanna hvort breyttar reglur þýddu að þeir gætu hafið blóð­gjafir á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“