
Royal College of Nursing (RCN), stærsta fag- og stéttarfélag hjúkrunarfræðinga í Bretlandi, hefur slitið viðskiptasamstarfi við Teva UK, breskt dótturfélag ísraelska lyfjafyrirtækisins Teva Pharmaceuticals.
RCN, sem hefur yfir 500.000 meðlimi, hefur jafnframt ákveðið að Teva verði ekki lengur styrktaraðili Nursing Leadership Summit, ráðstefnu um meðferð við mígreni og höfuðverk sem fara á fram í höfuðstöðvum félagsins í London 30. október.
Ákvörðunin kom í kjölfar þrýstings frá samtökunum Nurses for Palestine og UK Healthcare Petitions to Royal Colleges, sem höfðu gagnrýnt samstarf RCN við Teva og kallað eftir því að því yrði slitið.
Carmel O’Boyle, formaður stjórnar RCN, staðfesti ákvörðunina í bréfi til Nurses for Palestine. Hún sagði að frekari athugun á alþjóðlegri starfsemi Teva hefði leitt í ljós starfsemi sem hefði sætt lagalegum viðurlögum og mikilli opinberri gagnrýni og samræmdist ekki gildum RCN og RCNi, útgáfu- og fræðslusviðs samtakanna.
RCN hefur jafnframt boðað heildarendurskoðun á stefnu sinni um viðskiptasamstarf.
BDS Ísland fagnar ákvörðuninni
BDS Ísland fagnar ákvörðun breska hjúkrunarfélagsins í Facebook-færslu og bendir á tengsl Teva við Ísraelsher.
Í færslunni segir að Teva styðji Ísraelsher og að tengsl fyrirtækisins við herinn séu umfangsmikil. Þar er meðal annars fullyrt að allt að tíu prósent starfsfólks Teva séu í varaliði Ísraelshers, að starfsmenn sem hafi tekið þátt í hernaðaraðgerðum á Gaza hafi áfram fengið laun frá fyrirtækinu og að Teva hafi veitt ísraelska hernum lyf og tölvubúnað.
BDS Ísland bendir einnig á að Teva hafi sætt umfangsmiklum lagalegum viðurlögum vegna viðskiptahátta fyrirtækisins. Teva hefur á undanförnum árum meðal annars sætt sektum í Bandaríkjunum og Evrópu vegna brota á samkeppnisreglum og annarra viðskiptahátta. Evrópusambandið sektaði fyrirtækið árið 2024 um 462,6 milljónir evra fyrir samkeppnisbrot.
BDS Ísland hvetur í færslunni íslensk heilbrigðis- og fagfélög, þar á meðal Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands, Lyfjafræðingafélag Íslands og Lyfjastofnun, til að taka afstöðu til tengsla við Teva en hvorugt félagið var með í átakinu Þjóð gegn þjóðarmorði í fyrra.
Ákvörðun RCN hefur verið fagnað af hópum sem berjast fyrir réttindum Palestínumanna, en Teva hefur lýst yfir vonbrigðum með ákvörðunina og gagnrýnt að heilbrigðismál séu gerð pólitísk.
