Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Hringdi svangur og særður í ömmu sína

Móðir talin hafa verið í geðrofi þegar hún réðst á börn sín
Móðir talin hafa verið í geð­rofi þegar hún réðst á börn sín Mynd: Instragram

Hin 35 ára gamla Taylor Gosnell hefur verið handtekin og ákærð fyrir tilraun til manndráps og vopnaburð við ofbeldis­brot, eftir að hafa ráðist af miklu offorsi gegn tveimur ungum börnum sínum á heimili þeirra í Spartanburg County um síðustu helgi. Börnin, sem eru þriggja og sex ára gömul, hlutu lífs­hættulega áferka í árásinni og liggja nú þungt haldin á sjúkra­húsi.

Voru heima svöng

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hófst málið þegar sex ára gamall sonur Gosnell hringdi í ömmu sína til að láta vita að hann og yngra systkini sitt væru ein heima og svöng. Við það flýttu amma barnanna og fyrr­verandi kærasti Gosnell sér á vettvang og gerðu lögreglu viðvart.

Lögreglu­menn sem komu fyrstir á vettvang lýstu aðkomunni sem skelfilegri. Blóð var út um allt hús, sjónvörp og speglar höfðu verið mölvaðir og glerbrot lágu á gólfum. Inni á heimilinu fundust börnin tvö alblóðug með fjölda djúpra stungu­sára og skurða. Í dóms­málinu kom fram að sárin á börnunum væru svo djúp að sum þeirra næðu inn að beini. Sjöunda umdæmis­saksóknara­embættið greindi frá því að sex ára drengurinn gæti þurft að gangast undir aflimun á fingrum og hugsanlega handlegg vegna alvarleika áverkanna.

Börnin voru flutt í skyndi á Prisma Health barna­spítalann í Greenville þar sem þau hafa þegar gengist undir aðgerðir og eiga von á frekari skurð­aðgerðum. Læknar telja að þau muni lifa árásina af.

Andlegt ástand

Taylor Gosnell sneri aftur á vettvang skömmu eftir að lögreglu bar að garði. Hún sýndi merki mikils andlegs óstöðug­leika, talaði hratt og fullyrti að hún upplifði sýnir og heyrði raddir. Rannsókn lögreglu á samfélags­miðlum hennar sýndi að hún hafði birti færslur örfáum klukku­stundum fyrir árásina þar sem hún grátbað fólk um að hætta að hlæja að sér. Saksókn­arar telja að hún hafi verið í alvarlegu geðrofi þegar árásin átti sér stað, en hún er sögð hafa beitt bæði hnífi og hafnabolta­kylfu. Gosnell var flutt með sjúkrabíl til geðmats áður en hún var vistuð í fangelsi.

Í ljós hefur komið að Gosnell var laus gegn tryggingu þegar árásin átti sér stað, en hún var handtekin í febrúar 2024 og ákærð fyrir að stofna lífi barna sinna í hættu og vanrækslu.

Gosnell var neitað um tryggingu við fyrstu fyrirtöku og verður hún áfram í gæslu­varðhaldi í Spartanburg County Detention Center fram að næstu réttar­höldum, sem áætluð að verði þann 12. nóvember næst­komandi. Verði hún fundin sek gæti hún átt yfir höfði sér allt að 60 ára í fangelsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs