1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

7
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

8
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Til baka

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

„Það liggur engum svona mikið á að líf vegfarenda þurfi að liggja við“

Hafnarbraut
KársnesMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Áhyggjur eru meðal íbúa í Kópavogi vegna umferðaröryggis barna og annarra gangandi vegfarenda. Móðir á Kársnesi segir ítrekað hafa komið fyrir að ökumenn stöðvi ekki fyrir sex ára dóttur hennar þegar hún bíður við gangbraut á leið sinni í skólann.

María Magnúsdóttir vakti athygli á málinu í Facebook hópnum Kársnesið Okkar. Þar lýsir hún áhyggjum sínum af hegðun ökumanna og hvetur þá til þess að sýna meiri aðgát í umferðinni.

„Ég hef ítrekað orðið vitni að því að 6 ára dóttir mín stendur við gangbraut á leið í skólann og akandi vegfarendur stoppa ekki til að hleypa henni yfir,“ skrifar María.

Hún minnir jafnframt ökumenn á skyldur þeirra gagnvart gangandi vegfarendum við gangbrautir og spyr hvort ekki sé hægt að gera betur þegar kemur að öryggi þeirra sem fara um Kársnesið fótgangandi.

Segir ökumann hafa tekið fram úr á Kópavogsbraut

Fleiri íbúar tóku undir áhyggjur Maríu. Ragnheiður Júlía Ragnarsdóttir segir mikilvægt að ökumenn dragi úr hraða og bendir á að hámarkshraði sé víða 30 kílómetrar á klukkustund á Kársnesi.

Hún lýsir jafnframt atviki sem hún varð fyrir á Kópavogsbraut þegar ökumaður tók fram úr henni þrátt fyrir að hún hefði sjálf verið á rúmlega 30 kílómetra hraða.

„Það liggur engum svona mikið á að líf vegfarenda þurfi að liggja við,“ skrifar Ragnheiður.

Gestur Valgarðsson tekur í sama streng og segir ökumenn þurfa að vera sérstaklega varkára og sýna gangandi vegfarendum virðingu.

Segir sama vandamál vera á Digranesvegi

Umræðan virðist ekki eingöngu bundin við Kársnesið. Katrín Steinarsdóttir segir sambærilegt vandamál hafa verið viðvarandi á Digranesvegi um árabil.

Hún segist í gegnum tíðina hafa orðið vitni að atvikum þar sem litlu munaði að börn hennar og annarra yrðu fyrir bíl. Hún lýsir ástandinu sem alvarlegu vandamáli og segir meðal annars hafa komið fyrir að ökumaður hafi ekið yfir gangbraut þrátt fyrir rautt ljós.

Færslurnar sýna að nokkrir íbúar hafa verulegar áhyggjur af umferðaröryggi barna í Kópavogi. Sérstök áhersla er lögð á að ökumenn virði gangbrautir, dragi úr hraða og sýni aukna aðgát þar sem börn eru á ferli, ekki síst á morgnana þegar þau eru á leið í skóla.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Konan hafði gert tímabundinn leigusamning
Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar
Innlent

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
Myndir
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Árbænum

Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Konan hafði gert tímabundinn leigusamning
Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum
Innlent

Erlend kona fékk skilorð eftir alvarlegt slys undir Eyjafjöllum

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Innlent

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar
Innlent

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Loka auglýsingu