
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna, auk þess sem tilkynnt var um líkamsárásir og umferðarslys.
Ökumaður var stöðvaður í Reykjavík eftir að hafa ekið á 80 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Málið var afgreitt með sekt. Annar ökumaður var stöðvaður í miðbæ Reykjavíkur fyrir að tala í farsíma við akstur án þess að nota handfrjálsan búnað og fékk hann einnig sekt.
Tilkynnt var um líkamsárás í miðborginni. Meiðsli voru minniháttar en einn maður, sem var í annarlegu ástandi, var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Sambærilegt mál kom upp í hverfi 200 þar sem tilkynnt var um líkamsárás og minniháttar meiðsli. Þar var maður í annarlegu ástandi einnig handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Ökumaður var stöðvaður í Laugardalnum vegna gruns um ölvunarakstur og var látinn laus að lokinni blóðsýnatöku. Í Hafnarfirði var ökumaður stöðvaður og kom í ljós að hann hafði verið sviptur ökuréttindum. Málið var afgreitt með sekt.
Í Reykjanesbæ var ökumaður stöðvaður eftir að hafa mælst á 119 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Hann fékk sekt.
Þá varð óvenjulegt umferðarslys í Reykjanesbæ þegar bifreið var ekið undir brú en reyndist of há til að komast þar undir og rakst í brúna. Engin slys urðu á fólki og var málið afgreitt á vettvangi.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir í Breiðholti vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og voru þeir látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku. Ökumaður í Kópavogi var sömuleiðis stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur og látinn laus að lokinni sýnatöku.
Þá stöðvaði lögregla tvo ökumenn í Kópavogi vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við athugun kom jafnframt í ljós að ökumaður hafði verið sviptur ökuréttindum. Þeir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Ökumaður var stöðvaður í Breiðholti fyrir að aka gegn rauðu ljósi og var málið afgreitt með sekt.
Loks var tilkynnt um umferðarslys í Árbænum. Einn hlaut minniháttar meiðsli og var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku til frekari skoðunar.
