
Atlantsolía skilaði 740 milljóna króna hagnaði á síðasta ári og hefur afkoma félagsins aldrei verið betri. Til samanburðar nam hagnaðurinn 651 milljón króna árið 2024. Samanlagður hagnaður fyrirtækisins undanfarin fjögur ár nemur tæpum 2,5 milljörðum króna.
Viðskiptablaðið greindi frá.
Tekjur Atlantsolíu hafa hins vegar farið lækkandi frá árinu 2022. Heildartekjur félagsins námu 8,2 milljörðum króna í fyrra og drógust saman um 7,3 prósent frá fyrra ári.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði nam 930 milljónum króna, samanborið við 995 milljónir árið áður. Þrátt fyrir lægri rekstrarhagnað batnaði heildarafkoma félagsins milli ára. Þar vógu þyngst auknar fjármunatekjur og lægri fjármagnsgjöld.
