1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

4
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

5
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

6
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

7
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

8
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

9
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Hægt á verðhækkunum á matvöru

Verðþróun eftir vöruflokkum

Súpermarkaður
Mynd: Unsplash/Nrd

Dagvöruvísitala ASÍ lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026. Hægt hefur á verðhækkunum á matvöru síðustu mánuði eftir miklar hækkanir í upphafi árs. Frá ágúst 2025 til september 2026 hefur dagvöruverðsvísitalan hækkað um 3,4%. Helstu drifkraftar hækkunar á matvöru síðustu misseri eru hækkanir á kjötvöru, mjólk og ferskvöru.

Ávextir og grænmeti hækka mest á einu ári

Verð hækkaði í flestum dagvöruflokkum frá ágúst 2025 til september 2026. Mesta hækkunin mældist á grænmeti, sem hækkaði um 18% á tímabilinu þrátt fyrir nokkra lækkun yfir sumarmánuðina. Appelsínur og fleiri ferskir ávextir hækkuðu um 10,7% á tímabilinu. Ber hækkuðu um 5,6%, epli um 5,3% og bananar um 5,2%. Kál hækkaði um 3,7%, en kartöflur aðeins um 1%. 

Sveiflurnar voru mun meiri í þessum vöruflokkum en í öðrum vöruflokkum. Það endurspeglar meðal annars að verð á ferskvöru getur tekið hröðum breytingum milli mánaða og eftir árstíðum.

Kjötvörur hækka almennt

Allir kjötvöruflokkarnir í samanburðinum hækkuðu í verði milli ára. Mest hækkaði lambakjöt, um 6,2%, og fuglakjöt um 5,7%. Unnið, reykt og saltað kjöt hækkaði um 4,9% og svínakjöt um 4,8%. Verðlagseftirlitið hefur áður vakið athygli á miklum verðhækkunum á kjötvörum. Þó að dregið hafi úr verðhækkunum eru þær áfram sá liður sem drífur áfram verðhækkanir á matvöru. 

Nautakjöt hækkaði um 3,7% og annað nýtt eða frosið kjöt um 2,3%. Stærstur hluti hækkunarinnar kom fram á fyrstu mánuðum ársins 2026. Eftir vorið varð verðþróunin almennt stöðugri. 

Mjólkurvörur hækka um 2–4%

Verð hækkaði einnig á öllum helstu mjólkurvörum. Ostar hækkuðu um 4,3% og smjör um 4,2%. Léttmjólk og undanrenna hækkuðu um 3,6%, súrmjólk, skyr og rjómi um 3,5% og jógúrt um 3%. 

Nýmjólk hækkaði minnst mjólkurvara, um 2%. Verð hennar lækkaði nokkuð í september eftir hækkun fyrr á árinu. 

Hóflegri breytingar á þurrvöru

Verð á þurrvöru hefur verið mun stöðugra. Brauð hefur hækkað um 2% frá því í ágúst í fyrra, pasta um 1,5% og flatbrauð, hrökkbrauð og kex um 1,1%. Sætabrauð og kökur hækkuðu um 1%. 

Kornvörur voru eini flokkurinn sem lækkaði milli ára. Lækkunin nam um 0,5% og kom að mestu fram í september. 

Niðurstöðurnar sýna að verðhækkanir dagvöru dreifast mjög ójafnt. Þótt breytingar séu litlar í mörgum þurrvöruflokkum hafa miklar hækkanir á ferskvöru, kjöti og mjólkurvörum sem vega þungt í vörukörfu flestra heimila mikil bein áhrif á útgjöld heimilanna til matarinnkaupa. 

Um könnunina

Verð voru sótt úr nýjustu verðtöku ASÍ fyrir septembermánuð. Bornar eru saman sömu vörur milli mánaða. Hér er því aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð. 

Öll verð ásamt nýjustu verðum geta neytendur nálgast í Nappinu eða á verdlagseftirlit.is

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ“
Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Risk tók áhættuna alla leið í þrot
Peningar

Risk tók áhættuna alla leið í þrot

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara
Peningar

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Nýdönsk stofnar fyrirtæki
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Loka auglýsingu