1
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

2
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

3
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

4
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

5
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

6
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

7
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

8
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

9
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

10
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Til baka

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Sagt að um 90 prósent einstaklinga í vændi vilji hætta

Helgi Áss Grétarsson
Helgi Áss GrétarssonEr meðlimur Miðflokksins
Mynd: Víkingur

Reykjavíkurborg hyggst móta samræmt verklag til að aðstoða einstaklinga sem vilja komast út úr vændi eða mansali. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar í vikunni.

Tillagan kom frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins og gerir ráð fyrir að sérstakur verkefnahópur verði settur á laggirnar. Í honum eiga að sitja fulltrúar velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Bjarkarhlíðar, Stígamóta og Félagsbústaða. Þá verður óskað eftir aðkomu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og annarra hagaðila eftir þörfum.

Hópnum verður falið að móta skýra þjónustuleið fyrir fólk sem vill komast út úr vændi eða mansali. Ábyrgð og hlutverk hvers aðila eiga að vera skilgreind og tryggja á samfellu í þjónustunni.

Sérstök áhersla verður lögð á að fólk fái skjótt aðgengi að öruggu húsnæði, félagslegum stuðningi, áfallamiðaðri ráðgjöf og öðrum nauðsynlegum úrræðum án þess að þurfa sjálft að leita á milli stofnana.

Segja 90 prósent vilja hætta

Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Vinstrisins og Framsóknarflokksins kemur fram að í nýlegri heimsókn til Stígamóta hafi verið vakin athygli á kerfislægum hindrunum sem mæti fólki sem vill komast út úr vændi eða mansali.

Þar hafi komið fram að um 90 prósent einstaklinga í vændi vilji hætta en fátækt, húsnæðisleysi og áföll geti gert þeim erfitt fyrir að sjá leið út úr aðstæðunum. Þá geti skömm gert fyrsta skrefið í átt að aðstoð sérstaklega erfitt.

Fulltrúarnir telja að þjónustukerfið megi ekki verða önnur hindrun þegar fólk leitar sér hjálpar. Markmiðið sé því að fólk þurfi ekki að ganga á milli stofnana og segja sögu sína ítrekað til að fá viðeigandi aðstoð.

Miðflokkurinn vildi breyta tillögunni

Helgi Áss Grétarsson, fulltrúi Miðflokksins í ráðinu, lagði fram breytingartillögu. Þar lagði hann meðal annars til að í verkefnahópnum sætu einnig akademískur sérfræðingur við Háskóla Íslands sem styður afglæpavæðingu vændis og fulltrúi Rauðu regnhlífarinnar, samtaka kynlífsverkafólks á Íslandi.

Í breytingartillögunni var jafnframt gert ráð fyrir að þjónustuleiðin beindist að einstaklingum sem stunda vændi í skjóli mansals og vilja komast út úr þeirri aðstöðu.

Breytingartillagan var felld með sex atkvæðum gegn einu.

Helgi Áss sat hjá þegar upphaflega tillagan var samþykkt. Í bókun sinni sagði hann framkvæmd stefnu stjórnvalda í vændismálum fyrst og fremst vera á ábyrgð ríkisins en ekki sveitarfélaga. Hann sagði tillöguna því hafa viss einkenni pólitískrar sýndarmennsku.

Hann tók þó fram að félagsþjónusta sveitarfélagsins ætti meðal annars að ná til íbúa sem væru fórnarlömb mansals. Það leiddi hins vegar ekki sjálfkrafa til þess að sveitarfélagið ætti að aðstoða íbúa sem vildu hætta að veita kynlífsþjónustu og taldi hann slíkt verkefni fremur eiga heima hjá ríkisvaldinu.

Verkefnahópurinn á að skila velferðarráði tillögu að verklagi og útfærslu fyrir 20. desember.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring
Heimur

Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring

„Við urðum vinir þetta kvöld“
Nýjar ásakanir um leynilega fjármögnun Kushners frá valdhöfum í Mið-Austurlöndum
Heimur

Nýjar ásakanir um leynilega fjármögnun Kushners frá valdhöfum í Mið-Austurlöndum

Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt
Innlent

Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar
Myndband
Fólk

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

Sýslumaður boðar fjóra erlenda feður vegna meðlagsmála
Innlent

Sýslumaður boðar fjóra erlenda feður vegna meðlagsmála

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu
Myndir
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

Vinur sagður í hættu eftir árás
Innlent

Vinur sagður í hættu eftir árás

Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Pólitík

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Sagt að um 90 prósent einstaklinga í vændi vilji hætta
Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple
Pólitík

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple

Loka auglýsingu