
Niðurstöður úttektar á fyrirkomulagi fósturmála hjá Barnavernd Reykjavíkur benda til þess að mikið og viðvarandi álag á starfsfólk hafi meðal annars orðið til þess að lögum og verklagi sé ekki alltaf fylgt við vistun barna. Þá séu dæmi um að eftirliti sé ekki sinnt samkvæmt lögum og að börn fái ekki þjónustu við hæfi.
Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar sem fór fram í fyrradag. Jafnframt var lagt fram minnisblað frá 19. október um úttektina, tillögur til úrbóta og stöðu þeirra. Anna Kristín Newton og María Rún Bjarnadóttir sáu um úttekina en þær eru báðar sálfræðingar.
Velferðarráð segir Barnavernd Reykjavíkur almennt fá góða umsögn hagaðila en niðurstöður úttektarinnar séu engu að síður alvarlegar og kalli á markviss viðbrögð.
Úrelt kerfi torveldar yfirsýn
Í bókun ráðsins kemur fram að þótt stöðugildum hjá Barnavernd Reykjavíkur hafi fjölgað undanfarin ár sé ljóst að frekari aðgerða sé þörf. Sérstök athygli er vakin á verulega úreltu málaskrárkerfi sem sagt er torvelda yfirsýn, eftirfylgni og samræmt verklag auk þess að auka álag á starfsfólk.
Ráðið telur brýnt að fjárfest verði í nútímalegu upplýsingakerfi sem einfaldi vinnu starfsfólks og tryggi betri yfirsýn yfir mál barna.
Jafnframt þurfi að styrkja eftirfylgni með aðbúnaði, öryggi og líðan fósturbarna og tryggja að sjónarmið barnanna séu skráð. Þá þurfi að innleiða skýr gæðaviðmið og bæta stuðning við ungmenni þegar fóstri lýkur.
Velferðarráð bendir þó á að Reykjavíkurborg hafi ekki forræði yfir öllum þeim úrbótum sem taldar eru nauðsynlegar. Skortur á fósturúrræðum, íþyngjandi regluverk og stjórnsýslulegar hindranir kalli einnig á aðkomu ríkisins.
Ráðið hyggst bregðast við niðurstöðum úttektarinnar með skipulögðum aðgerðum á næstu misserum. Reykjavíkurborg muni ráðast í þær úrbætur sem heyra undir borgina og jafnframt þrýsta á ríkið um breytingar á þeim þáttum sem eru á þess forræði.
Á fundinum fyrir hönd flokkanna í borgarstjórn sátu Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Þorvaldur Daníelsson, Róbert Ragnarsson, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Helgi Áss Grétarsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson.
