
Söngkonan Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz lést í Bandaríkjunum 18. október, 91 árs að aldri en hún fæddist á Egilsá í Skagafirði 16. september 1935.
Morgunblaðið greindi frá andláti hennar.
Sigurlaug hóf ung söngnám og naut meðal annars leiðsagnar Sigurðar Birkis, Engel Lund og Einars Kristjánssonar. Hún vakti mikla athygli árið 1968 þegar hún fór með hlutverk greifafrúarinnar í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart í Þjóðleikhúsinu.
Sigurlaug fluttist síðar til Svíþjóðar og kom þar fram undir listamannsnafninu Sigi Gudmundsdottir. Eftir lát eiginmanns síns, Guðlaugs Rósinkranz, árið 1977 fluttist hún til Los Angeles.
Þar kom hún meðal annars fram með Sinfóníuhljómsveitinni í Los Angeles og söng bandaríska þjóðsönginn á Dodgers Stadium. Síðar gaf hún út nokkrar hljómplötur undir listamannsnafninu Sally Rósinkranz.
Sigurlaug lætur eftir sig þrjú börn.