1
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

2
Peningar

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki

3
Innlent

Halldór Ingi enn ófundinn

4
Innlent

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni

5
Heimur

Grunur um árás á mikilvæga olíuleiðslu Rússa

6
Innlent

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið

7
Heimur

Fyrirsætan og sundfatahönnuðurinn Sahara Ray látin

8
Heimur

Sögusagnir um dauða Kim Jong-un ganga um heiminn

9
Innlent

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað

10
Innlent

„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“

Til baka

Áslaug Arna kveður ömmu sína

„Fastur punktur í tilverunni horfinn á braut“

Áslaug Arna
Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirÁslaug Arna minnist ömmu sinnar með hlýju
Mynd: Instagram

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ráðherra, minnist ömmu sinnar, Elsu, í einlægri Facebook-færslu þar sem hún rifjar upp náið samband þeirra, sameiginlegar minningar og þann ómetanlega stuðning sem amma hennar veitti henni í gegnum lífið.

„Þótt kveðjustundin nú sé lífsins gangur eftir gjöfult líf þá er fastur punktur í tilverunni horfinn á braut og það er sárt,“ skrifar Áslaug Arna.

Hún segir þær ömmu sína hafa verið perluvinkonur og að samband þeirra hafi orðið enn nánara eftir að móðir Áslaugar, elsta dóttir Elsu, lést langt fyrir aldur fram. Þær hafi fundið styrk hvor í annarri í sorginni.

„Amma hefur verið mér mikilvæg, bæði sem hún sjálf og sem tenging við mömmu sem við söknuðum sárt,“ segir hún.

Kynnti barnabörnin fyrir listum og menningu

Í færslunni rifjar Áslaug Arna upp hvernig amma hennar kynnti barnabörnin fyrir menningu og listum frá unga aldri. Elsa hafði sjálf stundað dans og saumaði búninga fyrir Íslensku óperuna, sem varð að ævintýraheimi í augum barnabarnanna.

Áslaug nefnir sérstaklega óperuna Töfraflautuna eftir Mozart og persónurnar Papagenó og Papagenu. Einnig rifjar hún upp fjölskyldusamkomur á heimili ömmu sinnar og afa í Kópavogi þar sem fjölskyldumeðlimir settu á svið söng- og dansatriði.

„Amma velti því samt þó oft fyrir sér hvort slíkur ferill hefði ekki verið skynsamlegra val en stjórnmálin,“ skrifar Áslaug í léttum tón.

Elsa studdi barnabarn sitt af heilum hug þótt hún viðurkenndi stundum að hún skildi ekki alltaf ákvarðanir hennar. Áslaug segir ömmuna hafa haft áhyggjur af því álagi sem fylgdi stjórnmálaþátttöku og þeirri gagnrýni sem hún varð fyrir.

Sjálf hafði Áslaug þó meiri áhyggjur af miklu safni blaðaúrklippa sem amma hennar hafði safnað um hana úr Morgunblaðinu í nærri tvo áratugi.

Nýjustu úrklippurnar rötuðu á vegg hjá ömmunni og þeim fylgdu gjarnan skilaboð um skoðanir hennar á málefnum líðandi stundar.

Mætti alltaf til að hjálpa

Áslaug segir stuðning ömmu sinnar hafa birst í hversdagslegum verkum jafnt sem hlýjum samtölum. Þegar mikið álag var á henni hafi Elsa alltaf fundið leið til að létta undir, hvort sem það var með því að strauja rúmföt, annast plöntur eða stytta buxur og gera við föt.

Sérstaklega hafi Áslaug þó metið heimsóknirnar þegar amma hennar mætti með spurningar um málefni líðandi stundar. Hún vildi kynna sér málin betur og geta varið barnabarnið sitt hvar og hvenær sem væri.

Áslaug rifjar einnig upp ferð fjölskyldunnar á Þingvelli árið 1994, þegar 50 ára afmælis lýðveldisins var minnst. Elsa klæddist þá þjóðbúningi og hafði saumað nýja barnaþjóðbúninga á þrjár fyrstu dætradætur sínar.

Áslaug erfði síðar þjóðbúning föðurömmu sinnar, Áslaugar, og naut aðstoðar Elsu við að klæðast honum við ýmis tilefni. Fyrir þremur árum saumaði Elsa nýja bláa svuntu á þjóðbúninginn svo barnabarnið hefði fleiri möguleika þegar hún klæddist honum.

Síðasta samtalið var henni kært

Áslaug segir síðasta samtal sitt við ömmuna hafa verið henni sérstaklega dýrmætt. Þær hafi rætt um bæði nýja tíma og gamla, en Elsa hafi jafnframt sagt að hún væri tilbúin að kveðja.

Hún minnist einnig heimsóknar þeirra í Hannesarholt þar sem þær lásu saman ljóð eftir Hannes Hafstein. Sú stund sé ein af mörgum sem hún minnist nú með þakklæti og bros á vör.

„Takk fyrir allt amma,“ skrifar Áslaug Arna að lokum.

Með færslunni birtir hún ljóðlínur Hannesar Hafstein sem hefjast á orðunum:

„Það er svo gaman að gleðj’ana ömmu,
og bros á vörum hennar sjá,
því amma er mamma hennar mömmu
og hún mamma er það besta sem ég á.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

Farþeginn var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús
Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

Fyrsta ebólutilfellið greint í Nígeríu í nýrri bylgju faraldursins í Afríku
Heimur

Fyrsta ebólutilfellið greint í Nígeríu í nýrri bylgju faraldursins í Afríku

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku
Innlent

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku

Tveir létust þegar kona ók pallbíl inn á knattspyrnuvöll
Heimur

Tveir létust þegar kona ók pallbíl inn á knattspyrnuvöll

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París
Innlent

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

„Þið verðið að taka mig upp núna, því ég er orðinn 100 ára“
Heimur

„Þið verðið að taka mig upp núna, því ég er orðinn 100 ára“

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina
Innlent

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu
Myndir
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

Krefjast rannsóknar á fyrrverandi ísraelskum herforingja vegna drápsins á Hind litlu
Heimur

Krefjast rannsóknar á fyrrverandi ísraelskum herforingja vegna drápsins á Hind litlu

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

„Fastur punktur í tilverunni horfinn á braut“
Flosi Kristinsson er fallinn frá
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

Arnþór Örlygsson er fallinn frá
Minning

Arnþór Örlygsson er fallinn frá

Marga Ingeborg Thome er látin
Minning

Marga Ingeborg Thome er látin

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Loka auglýsingu