
Lögreglan í Wichita í Kansas hefur vísað á bug ýmsum sögusögnum sem farið hafa á kreik eftir að kona ók pallbíl inn á knattspyrnuvöll með þeim afleiðingum að tveir létust og tíu særðust.
Í tilkynningu lögreglunnar á þriðjudag kemur fram að rangt sé að 34 ára konan, sem ók bifreiðinni, dvelji ólöglega í Bandaríkjunum. Þá hafi ekkert komið fram sem styðji fullyrðingar um að hún eða eiginmaður hennar tengist lögreglunni í Wichita, embætti lögreglustjórans í Sedgwick-sýslu eða öðrum löggæslustofnunum.
Lögreglan segir jafnframt að ekkert skráð sakavottorð hafi fundist hjá konunni. Hún hafi verið með gilt ökuskírteini og engar handtökuskipanir hafi verið í gildi gagnvart henni.
Lögreglan telur nauðsynlegt að leiðrétta rangar upplýsingar sem dreifst hafi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. Almenningur er hvattur til að treysta á opinberar upplýsingar meðan rannsókn málsins stendur yfir.
Konunni var sleppt úr haldi án ákæru eftir slysið. Lögreglan segir að rannsakendur hafi ekki haft nægilegan lagalegan grundvöll til að handtaka hana. Beðið er eftir niðurstöðum úr eiturefnamælingum og unnið er að tæknirannsókn á pallbílnum og gögnum úr ökutækinu.
Joe Sullivan, lögreglustjóri í Wichita, segir ákvörðunina um að sleppa konunni hugsanlega óvinsæla en lögreglu beri að starfa samkvæmt lögum Kansas og stjórnarskrá Bandaríkjanna.
Sex ára Cole Adrian og 35 ára Nicholas Schafer, báðir frá McPherson í Kansas, létust á vettvangi þegar bifreiðinni var ekið inn á knattspyrnuvöllinn.
Tíu aðrir særðust í slysinu, þar af fimm börn. Lögreglan hefur ekki veitt frekari upplýsingar um líðan þeirra.
Rannsókn málsins stendur enn yfir.
