
Atli Þór Fanndal Guðlaugsson gagnrýnir Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfuss, harðlega fyrir að birta fimm ára gamla ljósmynd frá Svíþjóð í færslu um ástandið í Frakklandi. Fjölmargir hafa gagnrýnt færsluna og sakað Elliða um að ala á fordómum. Bæjarstjórinn segir hins vegar að óheftur straumur innflytjenda, sérstaklega múslima, valdi skaða í Evrópu.
Elliði Vignisson, fyrrverandi bæjarstjóri Vestmannaeyja, vakti hörð viðbrögð á Facebook eftir að hann birti ljósmynd af hópi ungra manna í tengslum við mótmæli og óeirðir í Frakklandi. Myndin reyndist hins vegar vera nokkurra ára gömul og tekin í Hjällbo, úthverfi Gautaborgar í Svíþjóð.
Elliði birti myndina með orðunum:
„Hér má sjá nemendafélag framhaldsskóla í Frakklandi kalla eftir betri aðstöðu í skólanum sínum, ....eða hvað?“
Síðar bætti hann við athugasemd innan sviga: „Bætt við eftir á ...að gefnu tilefni, á þessari mynd eru hvorki Frakkar né nemendur.“
DV sagði frá því að færslan hafi miklar umræður og gagnrýni frá ýmsum þjóðþekktum einstaklingum, meðal annars tónlistarmanninum Bubba Morthens, rithöfundinum Illuga Jökulssyni og prestinum Bjarna Karlssyni. Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson gagnrýndi einnig bæjarstjórann.
Illugi skrifaði: „Mikið er þetta innilega innilega lágkúrulegt, Elliði.“
Bubbi beindi einnig orðum að bæjarstjóranum: „Elliði þetta er ekki þér líkt, þú ert stærri en þetta ef ég þekki þig rétt.“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður var enn harðorðari og skrifaði: „Þú ert nú meiri fordómapésinn.“
Elliði svaraði honum með háði og spurði hvort hann ætti við að bæjarstjórinn hefði fordóma gagnvart nemendafélögum. Þegar Sveinn Andri benti á að myndin væri gömul og tengdist ekki mótmælunum í Frakklandi svaraði Elliði: „Er ekki rasista spilið orðið dáldið þreytt? Held að þið séuð búin að þynna það hættulega mikið.“
Atli Þór segir myndina notaða til að ýta undir fordóma
Atli Þór Fanndal Guðlaugsson, verkefnastjóri á skrifstofu rektors við Háskólann á Bifröst, tekur undir gagnrýnina í Facebook-færslu í dag þar sem hann sakar Elliða um að dreifa upplýsingum sem standist ekki skoðun og nota ljósmyndina til að ýta undir ótta og fordóma gagnvart fólki með dökka húð.
„Hann Elliði er auðvitað upplýsingaóreiða í mannlegu formi. Auðvitað deilir hann einhverju rugli og falsi frá slefkrókum internetsins,“ skrifar Atli.
Hann segir að vandinn snúist ekki aðeins um að ljósmyndin hafi verið sett fram í röngu samhengi, heldur einnig um þau skilaboð sem hann telur að felist í birtingunni.
„Það er auðvitað tærasta form rasisma að birta mynd af hópum manna með dökka húð – að gera nákvæmlega ekkert á myndinni annað en að vera til, til að grafa undan mótmælum og hræða fólk,“ skrifar Atli.
Hann vísar til hugtaksins racial priming, sem lýsir því þegar vísanir til kynþáttar eða húðlitar eru notaðar til að hafa áhrif á viðhorf fólks og kalla fram ákveðin hugrenningatengsl.
Atli telur að með slíkri framsetningu sé verið að venja fólk við rasísk viðhorf og skapa andstæðu milli þeirra sem tilheyra eigin hópi og þeirra sem eru skilgreindir sem utanaðkomandi.
„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma,“ skrifar hann.
Atli leggur áherslu á að ekkert á ljósmyndinni sýni að mennirnir séu að fremja afbrot eða aðhafist eitthvað sem réttlæti neikvæða túlkun á þeim.
„Á myndinni er hópur ungra manna. Á myndinni er hópur ungra manna með dökka húð. Á myndinni er hópur manna sem klæðast tísku ungra manna. Á myndinni er hópur manna sem má alveg mótmæla,“ skrifar hann og bætir við: „Á myndinni er engin sönnun um neitt illt. Það getur vel verið að þarna séu engir kórdrengir en það er ekkert á myndinni sem kallar eftir neikvæðum viðbrögðum nema að þú sért lítill hræddur auli með svarta áru eins og hann Elliði litli. Það er engin tilviljun að svona smámenni hópist saman í Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn.“
Elliði segir innflytjendastefnuna valda skaða
Elliði hefur hafnað þeirri gagnrýni að færsla hans sé rasísk og beinir sjónum sínum að innflytjendastefnu Evrópuríkja.
Í svari við gagnrýni Bjarna Karlssonar segir hann að atburðirnir í Frakklandi séu afleiðingar stefnu sem Bjarni og skoðanasystkini hans hafi talað fyrir.
„Í Frakklandi erum við einfaldlega að sjá afleiðingar af þeirri stefnu sem þú og skoðanasystkin þín hafa talað fyrir. Ég veit að fyrir ykkur vakir ekkert illt en það gerir afleiðingarnar af þessu ekki bærilegri,“ skrifar Elliði.
Hann heldur áfram: „Óheftur straumur innflytjenda, sérstaklega múslima, er að valda skaða. Þess vegna eru nágrannar okkar að reyna að vinda ofan af þessu.“
Elliði vísar meðal annars til þróunar í löndum á borð við Norðurlöndin, Þýskaland, Bretland og Holland.
Þegar honum er bent á að ljósmyndin sé ekki frá Frakklandi svarar hann meðal annars: „Ó, ekki nemendafélag í Frakklandi, ég þarf greinilega að gæta að mér.“
Hann spyr jafnframt einn þeirra sem gagnrýna hann: „Heldur þú í alvöru að ég hafi haldið að þetta væru nemendur?“
