
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum fjölmiðlarmaður, varaði við mögulegu bakslagi í réttindum fatlaðs fólks í ræðu sinni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Sagði hann mikilvægt að standa vörð um þann árangur sem náðst hefði á undanförnum 50 árum.
Sigmundur Ernir rifjaði upp þær miklu samfélagsbreytingar sem urðu á Íslandi fyrir um hálfri öld og nefndi meðal annars stofnun samtaka á borð við SÁÁ, Samtökin '78, Geðhjálp og Þroskahjálp. Þroskahjálp fagnar hálfrar aldar afmæli um þessar mundir.
„Hvað hefur breyst á þessum tíma? Allt. Það hefur allt breyst á þessum tíma, þökk sé eilífri baráttu foreldra og annarra framámanna í þessum geira,“ sagði Sigmundur Ernir.
Hann sagði stöðu fatlaðs fólks hafa verið allt aðra fyrir 50 árum. Atvinnuþátttaka hefði verið lítil sem engin, menntunarmöguleikar fáir og þátttaka í samfélaginu verulega takmörkuð. Fatlað fólk hefði jafnframt verið vistað á stofnunum þar sem aðstæður væru gjörólíkar því sem þekkist í dag.
Sigmundur Ernir sagði miklar framfarir hafa orðið síðan þá, meðal annars þegar kemur að atvinnuþátttöku, framhaldsmenntun og háskólanámi fatlaðs fólks. Hann sagði breytingarnar vera afrakstur áratugalangrar mannréttindabaráttu.
Varar við bakslagi
Þrátt fyrir framfarirnar sagðist Sigmundur Ernir hafa áhyggjur af umræðu sem heyrðist nú innan sveitarfélaga um kostnað vegna þjónustu við fatlað fólk.
„Við verðum hins vegar að hugsa sem svo að bakslagið sem nú heyrist í sveitarfélögum landsins er á að giska það að þessi málaflokkur sé orðinn of dýr,“ sagði hann.
Hann lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að ríkisstjórnin lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Slík lögfesting væri að hans mati mikilvæg vörn gegn því að gengið yrði á réttindi hópsins.
„Það skiptir nefnilega máli fyrir fatlað fólk hverjir stjórna landinu,“ sagði Sigmundur Ernir að lokum.
