1
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

2
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

3
Fólk

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

4
Innlent

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

5
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

6
Fólk

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu

7
Pólitík

Daði segir alla söguna komna fram um brotthvarf Harðar

8
Menning

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“

9
Fólk

Íris var sökuð um að vera slæm fyrirmynd á laugardagskvöldi

10
Innlent

Eldi Smára hafnað

Til baka

Víðir varar við úreltu viðvörunarkerfi Íslands

„Réttar upplýsingar um stöðu mála er forsenda þess að þeir sem þurfa geti tekið réttar ákvarðanir“

Víðir Reynisson
Víðir ReynissonEr þingmaður Samfylkingarinnar
Mynd: Víkingur

Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi sviðsstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, telur brýnt að stjórnvöld hraði innleiðingu nýs viðvörunarkerfis sem geri kleift að senda skilaboð samtímis í alla farsíma landsmanna þegar hættuástand skapast.

Víðir ræddi málið undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Hann sagði miðlun réttra upplýsinga vera einn af lykilþáttum áfallaþols og þjóðaröryggis, enda væri mikilvægt að bæði almenningur og viðbragðsaðilar gætu brugðist hratt við þegar vá steðjar að.

„Réttar upplýsingar um stöðu mála er forsenda þess að þeir sem þurfa geti tekið réttar ákvarðanir og brugðist við eins og þörf krefur,“ sagði Víðir.

Hann benti á að upplýsingabæklingur almannavarna um viðbúnað einstaklinga og fjölskyldna vegna hamfara væri væntanlegur. Slíkur bæklingur væri góð byrjun en jafnframt þyrfti að tryggja að hægt væri að koma áríðandi upplýsingum hratt og örugglega til allra þegar á reyndi.

Víðir sagði að öll Norðurlöndin og mörg önnur Evrópuríki hefðu tekið upp kerfi sem gera yfirvöldum kleift að senda viðvaranir í alla farsíma samtímis, annaðhvort á afmörkuðum svæðum eða um heilt land. Við prófanir í Noregi hefðu slík skilaboð borist í alla síma landsins á örfáum sekúndum.

SMS kerfið getur valdið töfum

Hér á landi sé hins vegar enn stuðst við hefðbundið SMS kerfi. Víðir sagði það bagalegt þar sem skilaboðin fari í sömu biðröð og önnur SMS skilaboð. Mikil notkun kerfisins geti því jafnframt tafið boðun viðbragðsaðila þegar mest liggur við.

Hann nefndi sem dæmi eldgosið í Holuhrauni þegar senda þurfti viðvörun vegna gasmengunar í Eyjafirði. Að sögn Víðis tók þá um 45 mínútur að koma viðvöruninni til íbúa.

„Nýtt kerfi sem sendir boð á alla síma á sama tíma er því mikilvægt og nauðsynlegt verkefni sem hraða þarf í nafni þjóðaröryggis,“ sagði Víðir.

Hann telur því mikilvægt að stjórnvöld hraði uppbyggingu slíks kerfis svo hægt verði að koma viðvörunum til almennings hratt og örugglega þegar hættuástand skapast.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“
Pólitík

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“

Þingmaður Samfylkingarinnar kallaði eftir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála
„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“
Innlent

„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður
Pólitík

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður

Níu handteknir eftir röð ofbeldisfullra göturána á Tenerife
Heimur

Níu handteknir eftir röð ofbeldisfullra göturána á Tenerife

Fyrirsætan og sundfatahönnuðurinn Sahara Ray látin
Heimur

Fyrirsætan og sundfatahönnuðurinn Sahara Ray látin

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks
Pólitík

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks

Tveir menn grunaðir um grófa nauðgun á tveimur stúlkum í Malmö
Heimur

Tveir menn grunaðir um grófa nauðgun á tveimur stúlkum í Malmö

Seldi allt sitt fyrir TikTok-ást sem var aldrei raunveruleg
Heimur

Seldi allt sitt fyrir TikTok-ást sem var aldrei raunveruleg

Christina Applegate ekki með MS-sjúkdóminn eftir allt saman
Heimur

Christina Applegate ekki með MS-sjúkdóminn eftir allt saman

Tækifæri til að sjá allt að 20 stjörnuhröp á klukkustund yfir Íslandi
Myndband
Innlent

Tækifæri til að sjá allt að 20 stjörnuhröp á klukkustund yfir Íslandi

Tíu nammitegundir sem slá í gegn á hrekkjavöku
Fólk

Tíu nammitegundir sem slá í gegn á hrekkjavöku

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni
Innlent

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni

Þroskahjálp fær milljónir til að efla þátttöku fatlaðs fólks
Pólitík

Þroskahjálp fær milljónir til að efla þátttöku fatlaðs fólks

Pólitík

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“
Pólitík

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“

Þingmaður Samfylkingarinnar kallaði eftir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála
Björn Leví kallar fyrirkomulag Sósíalistaflokksins „djöflasýru“
Pólitík

Björn Leví kallar fyrirkomulag Sósíalistaflokksins „djöflasýru“

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður
Pólitík

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks
Pólitík

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks

Víðir varar við úreltu viðvörunarkerfi Íslands
Pólitík

Víðir varar við úreltu viðvörunarkerfi Íslands

Þroskahjálp fær milljónir til að efla þátttöku fatlaðs fólks
Pólitík

Þroskahjálp fær milljónir til að efla þátttöku fatlaðs fólks

Loka auglýsingu