
Loftsteinadrífan Óríonítar nær hámarki aðfaranótt 22. október og gefst þá gott tækifæri til að sjá stjörnuhröp á íslenskum næturhimni, ef veður leyfir.
Samkvæmt grein Lifandi Vísinda eru Óríonítarnir leifar halastjörnunnar Halley, sem síðast sást frá jörðu árið 1986. Halastjarnan kemur ekki aftur fyrr en árið 2061 en skilur eftir sig slóð ryks og smárra ísagna á braut sinni um sólina. Þegar jörðin fer í gegnum þessa slóð brenna agnirnar upp í lofthjúpnum og mynda stjörnuhröp.
Við bestu aðstæður geta Óríonítarnir skilað allt að 20 stjörnuhröpum á klukkustund. Nafn drífunnar vísar til stjörnumerkisins Óríons, en þaðan virðast stjörnuhröpin eiga upptök sín.
Hvenær og hvar er best að horfa?
Óríonítarnir sjást frá 2. október til 7. nóvember 2026, en hámark drífunnar verður aðfaranótt 22. október.
Best er að fylgjast með himninum eftir klukkan þrjú um nóttina, þegar tunglið er sest og myrkrið því meira. Þá eru einnig góðar líkur á að sjá fjölda stjörnuhrapa, að því gefnu að skýjahula skyggi ekki á himininn.
Um þetta leyti virðast stjörnuhröpin eiga upptök í suðaustri og færist það svæði smám saman til suðurs þegar líður á morguninn. Þó er hægt að sjá stjörnuhröp hvar sem er á himninum og því er best að horfa yfir sem stærstan hluta hans.
Ráð fyrir þá sem vilja mynda stjörnuhröpin
Samkvæmt greininni er þeim sem vilja reyna að ljósmynda Óríonítana ráðlagt að nota myndavélarstand og víðlinsu. Best er að stilla myndavélina þannig að hún taki myndir sjálfkrafa með reglulegu millibili, þar sem erfitt getur verið að vita nákvæmlega hvenær stjörnuhröp birtast.
Mikilvægt er að klæða sig vel, finna stað fjarri skærum ljósum og gefa sér góðan tíma til að fylgjast með himninum. Þægilegur stóll og gott útsýni yfir dimman næturhimin geta gert upplifunina enn betri.
Hér fyrir neðan má sjá Óríonítana á himni árið 2019.
