
Kona á fimmtugsaldri hefur verið ákærð fyrir fjársvik og verður mál gegn henni þingfest í héraðsdómi fyrir mánaðamót. DV greinir fyrst frá þessu.
Málið vakti mikla athygli árið 2023 þegar konan sat í tólf vikur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu. Samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði Landsréttar voru þá til rannsóknar meint brot gegn ellefu karlmönnum að fjárhæð um 25 milljónir króna.
Rannsókn á bankagögnum leiddi jafnframt í ljós að hátt í 400 karlmenn höfðu lagt samtals yfir 200 milljónir króna inn á bankareikninga konunnar á nokkurra ára tímabili.
Konan var meðal annars grunuð um að hafa komist yfir rafræn skilríki karla og stofnað til fjárskuldbindinga í þeirra nafni. Lögregla taldi sex mannanna sem rannsóknin náði til vera með þroskaskerðingu.