1
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

2
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

3
Fólk

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

4
Innlent

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

5
Fólk

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu

6
Pólitík

Daði segir alla söguna komna fram um brotthvarf Harðar

7
Menning

„Maður verður bara að halda áfram og fara sína eigin leið“

8
Fólk

Íris var sökuð um að vera slæm fyrirmynd á laugardagskvöldi

9
Innlent

Eldi Smára hafnað

10
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

Til baka

Segir alhæfingar Hannesar um mótmælin í Frakklandi „bara bull til að blekkja“

Hjálmtýr Heiðdal sakar Hannes Hólmstein um að blekkja fólk um mótmæli í Frakklandi

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn GissurarsonHjálmtýr hjólar í Hannes Hólmstein í nýrri færslu
Mynd: Mannlíf

Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína, gagnrýnir Hannes Hólmstein Gissurarson harðlega fyrir ummæli hans um mótmæli og óeirðir í Frakklandi. Í Facebook-færslu sem hann nefnir „Alhæfingar Hannesar Hólmsteins“ segir Hjálmtýr prófessorinn reyna að telja fólki trú um að öfgavinstrisinnar og öfgamúslimar standi að baki mótmælunum.

„Hannes Hólmsteinn fer mikinn á samfélagsmiðlum og reynir að telja fólki trú um að öfgavinstrisinnar og ögfgamúslimar standi að baki mótmælunum í Frakklandi og óeirðunum sem fylgja í kjölfarið,“ skrifar Hjálmtýr.

Hann segir mótmæli ekki aðeins fara fram í Frakklandi heldur einnig í Portúgal, á Ítalíu, Spáni og í Albaníu.

„Það er fyrst og fremst verið að mótmæla niðurskurði í menntamálum og almannaþjónustu auk hækkandi vöruverðs sem ný-frjálshyggjan ber í skauti sér,“ skrifar Hjálmtýr og bætir við að það sé einmitt sú stefna sem Hannes Hólmsteinn „beri fyrir brjósti“.

Hann er harðorður í garð Hannesar og segir alhæfingar hans um mótmælendur vera „bara bull til að blekkja“.

Segir engar vísbendingar um að fyrirtæki gyðinga hafi verið sérstök skotmörk

Hjálmtýr gagnrýnir sérstaklega fullyrðingar Hannesar um að fyrirtæki í eigu gyðinga hafi verið eyðilögð í óeirðunum en verslunum í eigu múslima hlíft.

„Hannes fullyrðir ítrekað að fyrirtæki í eigu gyðinga hafi verið eyðilögð en verslunum í eigu múslima hafi verið hlíft,“ skrifar hann.

Í færslunni vísar Hjálmtýr til upplýsinga sem hann segir koma frá lögreglu og stofnunum gyðingasamfélagsins í París. Hann segir að hvorki lögreglan né stofnanir gyðinga hafi fundið vísbendingar um að samkunduhús eða fyrirtæki í eigu gyðinga hafi verið sérstaklega valin sem skotmörk vegna gyðingahaturs.

Hann vísar meðal annars til öryggisþjónustu gyðingasamfélagsins í Frakklandi, SPCJ (Service de Protection de la Communauté Juive), og löggæsluyfirvalda.

Samkvæmt Hjálmtý hafi fyrstu fullyrðingar um að óeirðaseggir hefðu farið eftir listum yfir heimilisföng í eigu gyðinga eða vísvitandi hlíft fyrirtækjum í eigu múslima birst á samfélagsmiðlum og í óstaðfestum fréttum.

„SPCJ og yfirvöld á staðnum komust að þeirri niðurstöðu að þessar fullyrðingar ættu sér enga stoð í raunveruleikanum,“ skrifar Hjálmtýr.

Vísar til 800 þúsund mótmælenda og 2.000 verslana

Hjálmtýr bendir á umfang mótmælanna og ringulreiðina sem fylgir þeim. Í færslunni nefnir hann um 800.000 mótmælendur og að skemmdarverk hafi verið unnin á um 2.000 verslunum víðs vegar um Frakkland.

Hann telur því ekki réttlætanlegt að fullyrða að fyrirtæki hafi verið valin sem skotmörk vegna trúarbragða eigenda þeirra án þess að sannanir liggi fyrir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Grunur um árás á mikilvæga olíuleiðslu Rússa
Myndband
Heimur

Grunur um árás á mikilvæga olíuleiðslu Rússa

Úkraínskir drónar sagðir hafa ráðist á Druzhba-olíukerfið
Grunuð um að hafa misnotað rafræn skilríki karla
Innlent

Grunuð um að hafa misnotað rafræn skilríki karla

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað
Innlent

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað

Þriggja milljarða hagnaður hjá móðurfélagi Össurar
Peningar

Þriggja milljarða hagnaður hjá móðurfélagi Össurar

Nemendur leiða hörð mótmæli gegn spillingu og ríkisstjórn Albaníu
Heimur

Nemendur leiða hörð mótmæli gegn spillingu og ríkisstjórn Albaníu

Stjórnvöld viðurkenndu að skilyrði bryti gegn EES-reglum
Innlent

Stjórnvöld viðurkenndu að skilyrði bryti gegn EES-reglum

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki
Peningar

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki

Björn Leví kallar fyrirkomulag Sósíalistaflokksins „djöflasýru“
Pólitík

Björn Leví kallar fyrirkomulag Sósíalistaflokksins „djöflasýru“

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið
Innlent

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið

Sögusagnir um dauða Kim Jong-un ganga um heiminn
Myndir
Heimur

Sögusagnir um dauða Kim Jong-un ganga um heiminn

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

Innlent

Grunuð um að hafa misnotað rafræn skilríki karla
Innlent

Grunuð um að hafa misnotað rafræn skilríki karla

Konan sat í tólf vikur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu
Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað
Innlent

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað

Segir alhæfingar Hannesar um mótmælin í Frakklandi „bara bull til að blekkja“
Innlent

Segir alhæfingar Hannesar um mótmælin í Frakklandi „bara bull til að blekkja“

Stjórnvöld viðurkenndu að skilyrði bryti gegn EES-reglum
Innlent

Stjórnvöld viðurkenndu að skilyrði bryti gegn EES-reglum

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið
Innlent

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið

Loka auglýsingu