
Mótmælendur í Albaníu hafa lent í átökum við óeirðalögreglu sjöunda daginn í röð. Mótmælin hafa einkennst af ofbeldi og vaxandi spennu, en þátttakendur krefjast umbóta í menntamálum, fleiri starfa, aðgerða gegn spillingu og afsagnar Edi Rama forsætisráðherra.
Mótmælendurnir eru margir framhaldsskóla- og háskólanemar sem vilja koma Rama frá völdum. Samkvæmt opinberum tölum höfðu 295 manns slasast áður en ný átök brutust út í gær, þar af 186 lögreglumenn.
„Um leið og ríkið semur við þetta hefur ríkið fallið,“ sagði Rama við lögreglustjóra, alvarlegur á svip, samkvæmt frétt BBC. Hann hélt á steini sem hafði verið kastað að lögreglu í átökum á sunnudag.
Samkvæmt fréttum staðbundinna fjölmiðla hafa mótmælendur í Tirana einkum beint aðgerðum sínum gegn opinberum stofnunum og lögreglu. Meðal skotmarka þeirra hafa verið bygging menntamálaráðuneytisins og svæðið í kringum skrifstofu forsætisráðherrans.
Krefjast umbóta og afsagnar forsætisráðherrans
Mótmælin hafa verið knúin áfram af kröfum um betri menntun, aukin atvinnutækifæri og að spillingu linni, auk þess sem mótmælendur vilja að Rama segi af sér, samkvæmt Al Jazeera.
Rama, sem hefur gegnt embætti forsætisráðherra frá árinu 2013, hefur kennt „erlendum öflum“ um aukin mótmæli og sagt ríkisstjórn sína gera sitt besta til að berjast gegn spillingu.
Hann hefur jafnframt sagst reiðubúinn að hlusta á réttmætar kröfur námsmanna og ræða kostnað við menntun. Hann leggur þó áherslu á að þeir sem beri ábyrgð á skemmdum á eignum verði látnir svara til saka.
Forsætisráðherrann hefur einnig sagt að meðal mótmælenda séu „ungir karlar og konur sem hafa orðið fyrir öfgavæðingu af hálfu myrkra afla í Evrópu og Bandaríkjunum““. Hann bætti við að Albanía væri orðin skotmark „vel samhæfðrar árásar“.
„Lögmæti hans er gufað upp“
Mentor Nazarko, stjórnmálaskýrandi frá Tirana, sagði í viðtali við Al Jazeera að Rama virtist ekki skilja hversu djúpstæð vandamálin væru, hefði ekki fundið lausnir og sóað dýrmætum tíma.
„Lögmæti hans er gufað upp. Milli hans og borgaranna er nánast ekkert nema lögreglan: hún er óþjálfuð í að takast á við mótmæli, illa launuð og innan hennar eru hópar sem vinna með glæpastarfsemi og spillingu,“ sagði Nazarko.
Nemendur kasta steinum og lögregla beitir táragasi
Í sólskini októbermánaðar í Rinia-garðinum, sem einnig er kallaður Unglingagarðurinn, fylgdist fréttamaður BBC með fólki losa hellusteina úr gangstéttum. Steinar af þessu tagi höfðu verið notaðir í átökunum og fólk safnaði þeim til að nota í síðari átökum við lögreglu. Ekki leið á löngu þar til til átaka kom á ný.
Lögreglubílar óku eftir breiðri breiðgötu, fremst var brynvarið ökutæki sem beitti vatnsbyssu og skaut táragashylkjum að mótmælendum sem flúðu undan.
Hópar óeirðalögreglu eltu að mestu leyti nemendur í gegnum garðinn. Sumir mótmælendur leituðu skjóls á kaffihúsi þar sem jafnvel þjónarnir fengu táragas í augun.
Undir trjánum stóðu sjálfboðaliðar í gulum endurskinsvestum vaktina og aðstoðuðu þá sem urðu illa úti vegna gassins. Fréttamaður sá ungan mann deila við lögreglumann sem sprautaði síðan piparúða beint í andlit hans úr mjög stuttu færi.
„Aðgerðir lögreglunnar eru oft óskipulagðar og heimskulegar,“ sagði mannréttindalögmaðurinn Gentian Sejrani við BBC. Hann veitir meira en 100 einstaklingum sem hafa verið handteknir lögfræðiaðstoð.
„Lögreglan leggur sjaldan fram sönnunargögn fyrir dómi,“ sagði hann. Meðal skjólstæðinga hans væri maður sem hefði verið handtekinn á leið sinni að strætóstoppistöð og hefði ekkert haft með mótmælin að gera.
„Þeir sem kasta í raun hlutum í lögregluna sleppa yfirleitt, vegna þess að þeir hlaupa hraðast,“ sagði Sejrani.
Lögreglan virðist jafnreið ofbeldinu gegn samstarfsfólki sínu og mótmælendur eru vegna harðneskjulegra aðferða lögreglunnar. Afleiðingin er algjör ringulreið að því er fram kemur í frétt BBC.
„Þeir hafa engan annan möguleika á að láta í sér heyra“
Þegar táragasið hafði dreifst frá kaffihúsinu í garðinum ræddi 27 ára aðgerðasinninn Sidorela Vatnikaj við fréttamann BBC. Hún er meistaranemi og hefur tekið þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum í átta ár. Þar sem hreyfingin er án formlegra leiðtoga er hún meðal reyndari þátttakenda.
Hún lýsti því hvernig venjulegur dagur hennar færi fram:
„Á morgnana reynir maður að samræma starfið við alla hópana, hvar þeir eru og hvar mótmælin fara fram. Hvort þörf sé á lögfræðingum, skyndihjálparbúnaði eða einhverjum öðrum búnaði. Maður þarf líka að ganga úr skugga um að allir vinir manns og fjölskyldumeðlimir sem taka þátt í mótmælunum séu í lagi.“
Hún sagði daginn fara í að ferðast milli mótmæla og að mikill tími færi í að hlaupa undan lögreglu.
Vatnikaj sagðist ekki vera sátt við ofbeldi sammótmælenda sinna gegn yfirvöldum en kenndi lögreglunni um að hafa komið átökunum af stað og kynt undir þeim.
„Þegar ég sé fólk kasta steinum í lögregluna skil ég reiði þess. Ég dæmi það ekki. Ég er ekki ánægð með þetta, en það hefur enga aðra leið til að fá á sig hlustað,“ sagði hún.
„Þetta er fólk úr fjölskyldum þar sem fjölskyldumeðlimir áttu ekki annarra kosta völ en að yfirgefa landið, ein milljón manna á síðasta áratug. Það hefur ekki aðeins verið rænt, heldur hefur það verið lagt í einelti, það hunsað og nú hefur það líka verið barið.“
Um helgina spurði forsætisráðherrann hvað myndi gerast ef hann segði af sér.
„Við þurfum tækniveldis-stjórn (technocratic government) í eitt ár til að undirbúa landið fyrir raunverulegar, lýðræðislegar kosningar,“ svaraði Vatnikaj.
Hún hefur sakað Rama um að hafa hagrætt úrslitum fyrri kosninga og um að vera í nánum tengslum við auðuga erlenda fjárfesta og skipulagða glæpahópa.
Vatnikaj sagði ungt fólk í Albaníu sækja hvatningu til annarra mótmælenda af Z-kynslóðinni víða um heim. Þar má meðal annars nefna mótmælin í Serbíu sem hófust 2024 og standa enn yfir en líkt og í Albaníu hafa mótmælendu í Serbíu mótmælt spillingu og stjórnarhættum yfirvalda.
Óánægja hefur aukist í marga mánuði
Óánægja með stjórnvöld í Albaníu hefur farið vaxandi undanfarna mánuði. Fyrstu mótmæli ársins, sem hófust í maí, voru kölluð „Flamingóbyltingin“.
Þá mótmælti fólk umdeildu verkefni um lúxusferðamannasvæði í suðurhluta Albaníu sem tengist Jared Kushner, tengdasyni Donalds Trump Bandaríkjaforseta.
Nú beinast mótmælin meðal annars að menntakerfinu, atvinnuleysi, spillingu og forystu Rama, sem hefur verið við völd frá árinu 2013.
