
Jón Guðni Pétursson hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir fjórar líkamsárásir. Þrír mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir til þriggja ára en Jón hafði áður hlotið skilorðsbundinn dóm fyrir tvær líkamsárásir.
Alvarlegasta atvikið sem fjallað var um í málinu átti sér stað í Bolungarvík aðfaranótt 8. júní 2025. Þar réðst Jón á systkini fyrir utan heimili þeirra.
Samkvæmt dóminum sló Jón karlmanninn nokkrum sinnum í andlitið með krepptum hnefa. Í átökunum beit hann manninn einnig í litla fingur vinstri handar og í geirvörtuna eða bringuna. Fyrir dómi viðurkenndi Jón að vel gæti verið að hann hefði bitið manninn á þessum stöðum en hélt því fram að hann hefði gert það til að losna úr hálstaki.
Brotaþolinn lýsti því hins vegar að Jón hefði ráðist á sig og veitt sér högg. Þegar hann hefði reynt að ná stjórn á Jóni hefði sá síðarnefndi farið að bíta hann, meðal annars í fingur og geirvörtu. Brotaþolinn kvaðst hafa verið með bitfar á geirvörtunni og mar í kring eftir átökin.
Dómurinn féllst ekki á að Jón hefði verið í lögmætri neyðarvörn og taldi ósannað að brotaþolinn hefði átt upptökin að árásinni.
Jón var jafnframt sakfelldur fyrir árás á systur mannsins. Samkvæmt niðurstöðu dómsins sparkaði hann í hné hennar og lífbein og tók hana hálstaki. Konan hlaut meðal annars áverka á hálsi, mar og eymsli í hné.
Tvær árásir á Edinborg Bistro
Jón var einnig sakfelldur vegna tveggja aðskilinna atvika á skemmtistaðnum Edinborg Bistro á Ísafirði.
Í mars 2025 sló hann starfsmann staðarins með krepptum hnefa í andlitið. Jón játaði þá árás fyrir dómi. Ákæruvaldið féll hins vegar frá þeim hluta ákærunnar sem laut að meintri líflátshótun.
Í september sama ár var Jón aftur á Edinborg Bistro. Honum hafði verið meinaður aðgangur að staðnum vegna fyrri hegðunar. Dómurinn taldi sannað að hann hefði kýlt dyravörð í andlitið milli augabrúnanna þegar dyravörðurinn reyndi að hindra hann í að komast inn.
Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að Jón hafði áður verið dæmdur fyrir tvær líkamsárásir og rauf með nýju brotunum skilorð þess dóms. Dómurinn lýsti árásunum sem tilefnislausum og fólskulegum.
Jóni var gert að sæta sex mánaða fangelsi, þar af þremur mánuðum skilorðsbundnum, auk þess að greiða einum brotaþola 200 þúsund krónur í miskabætur og annan kostnað.