
Ragnar Þór IngólfssonEr félags- og húsnæðismálaráðherra.
Mynd: Stjórnarráðið
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að veita Landssamtökunum Þroskahjálp 15 milljóna króna styrk til að efla starfsemi notendaráða fatlaðs fólks um land allt en þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Markmiðið er að auka þátttöku fatlaðs fólks í ákvarðanatöku um þjónustu sem það varðar og styrkja samráð þess við sveitarfélög. Notendaráð veita fötluðu fólki vettvang til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif á skipulag og framkvæmd þjónustu.
Styrkurinn verður meðal annars nýttur til að starfsmaður Þroskahjálpar geti sinnt ráðgjöf, stuðningi og eftirfylgni við notendaráðin. Þá verður unnið að því að efla starfandi ráð og styðja við stofnun nýrra þar sem þau eru ekki fyrir hendi.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
