
Edit Ómarsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar, hefur tekið sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Hún tekur sæti Maríu Rutar Kristinsdóttur, þingmanns Viðreisnar, sem verður fjarverandi frá þingstörfum á næstunni.
Edit er tölvunarfræðingur að mennt og hefur um árabil starfað í íslenska tæknigeiranum. Hún starfar nú hjá Símanum þar sem hún gegnir stöðu forstöðumanns sölu og þjónustu. Áður hefur hún meðal annars starfað hjá tæknifyrirtækjunum Advania og Origo.
Þótt starfsferill Editar hafi að stórum hluta verið tengdur tækni og viðskiptum hefur hún einnig mikinn áhuga á hönnun og tísku. Í viðtali við Morgunblaðið fyrir nokkrum árum ræddi hún meðal annars um brennandi áhuga sinn á hönnun, tísku og því sem þeim heimi tengist.
Þar lýsti Edit einnig því hvernig hennar eigin fatastíll hefði tekið breytingum í gegnum tíðina. Hún sagðist á einum tíma hafa verið hipster en síðar orðið meiri lopapeysu týpa þegar kæmi að klæðaburði.
