
Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, stofnandi samfélagsins Áfram stelpur, hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun þar sem hún skorar á Alþingi og dómsmálaráðherra að beita sér fyrir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála, allt frá rannsókn til dómsmeðferðar.
Í færslu sinni hvetur Heiða fólk til að skrifa undir listann og leggja þannig lið kröfu um breytingar á meðferð slíkra mála innan réttarkerfisins.
„Við segjum þolendum að segja frá og kæra. Þá verðum við líka að gera kröfur til þeirra sem taka við málunum, rannsaka þau og dæma,“ skrifar Heiða, eins og hún er kölluð.
Hún segir þolendur verða að geta treyst því að frásagnir þeirra og gögn séu metin af kostgæfni og að málin séu unnin af fagmennsku.
„Ég sætti mig ekki við að ábyrgðin sé sífellt færð yfir á þolendur ofbeldis,“ skrifar Heiða og leggur áherslu á að þeir sem beiti ofbeldi beri ábyrgð á eigin gjörðum.
Hún segir þolendur ekki eiga að þurfa að réttlæta hvers vegna þeir hafi ekki sagt oftar nei, mótmælt skýrar eða barist meira á móti.
Vill skoða mat á gögnum og áfallaviðbrögðum
Með undirskriftasöfnuninni vill Heiða að sérstaklega verði farið yfir hvernig læknisfræðileg gögn og frásagnir þolenda eru metin, hvernig fjallað er um samþykki og afturköllun þess og hvernig tekið er tillit til áfallaviðbragða.
Jafnframt vill hún að þekking og þjálfun þeirra sem starfa innan réttarkerfisins verði skoðuð.
Heiða krefst þess að niðurstöður úttektarinnar verði gerðar opinberar og að þeim fylgi tímasettar úrbætur, skýr ábyrgð og eftirfylgni.
Í lok færslunnar hvetur Heiða fólk til að skrifa undir undirskriftalistann og deila honum áfram.
Hún segir að ekki sé nóg að hvetja þolendur til að kæra ofbeldi, heldur þurfi réttarkerfið einnig að axla ábyrgð á meðferð málanna.
„Það er ekki nóg að hvetja þolendur til að kæra. Réttarkerfið verður líka að axla ábyrgð á því hvernig tekið er á málum þeirra,“ skrifar Heiða Ósk.
