1
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

2
Minning

Arnþór Örlygsson er fallinn frá

3
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

4
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

5
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

6
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

7
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

8
Pólitík

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi

9
Fólk

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

10
Fólk

Hús með beina tengingu við síðustu aftöku Íslands til sölu

Til baka

Isavia staðfestir komu vélar sem BDS Ísland tengir við brottvísanir ICE

„Isavia ohf. býr ekki yfir upplýsingum um það sem spurt er um, svo sem hver tilgangur flugsins var“

Leifsstöð
LeifsstöðISAVIA staðfestir flugið en veit ekki um tilganginn
Mynd: Víkingur

Isavia staðfestir að flugvél með skráningarnúmerið N62FF hafi lent á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt 10. september síðastliðins og farið aftur tæpum 70 mínútum síðar. Isavia segist hins vegar ekki búa yfir upplýsingum um tilgang flugsins.

Þetta kemur fram í svari Isavia við fyrirspurn Mannlífs vegna fullyrðinga BDS Íslands um að flugvélar tengdar brottvísunaraðgerðum bandarískra yfirvalda hafi tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli.

Í svari Isavia segir að vél með skráningarnúmerið N62FF lent þar klukkan 00.38 og farið aftur klukkan 01.47.

„Isavia ohf. býr ekki yfir upplýsingum um það sem spurt er um, svo sem hver tilgangur flugsins var,“ segir í svarinu.

BDS Ísland tengir vélina við brottvísanir

BDS Ísland hefur birt myndskeið á samfélagsmiðlum þar sem samtökin halda því fram að fjögur flug tengd brottvísunaraðgerðum bandarísku innflytjenda- og tollgæslunnar, ICE, hafi tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli á þessu ári.

Samkvæmt upplýsingum samtakanna áttu flugin sér stað 27. apríl, 29. júlí, 1. ágúst og 10. september. Þau segja vélarnar hafa verið reknar af fyrirtækinu Journey Aviation og tengjast brottvísunum frá Bandaríkjunum.

BDS Ísland hefur sérstaklega bent á vélina N62FF, sem samtökin segja hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli 10. september.

Samtökin hafa einnig vísað til umfjöllunar The Guardian og +972 Magazine um flug sem tengjast brottvísun Palestínumanna frá Bandaríkjunum. Samkvæmt þeirri umfjöllun voru Palestínumenn sem bandarísk yfirvöld höfðu handtekið fluttir úr landi með flugvél sem tengdist Journey Aviation.

Svara beðið frá dómsmálaráðuneytinu

Svar Isavia staðfestir komu vélarinnar N62FF til Keflavíkurflugvallar aðfaranótt 10. september, en veitir ekki upplýsingar um tilgang ferðarinnar eða hvort flugið tengdist brottvísunaraðgerðum bandarískra yfirvalda.

BDS Ísland hefur gagnrýnt íslenska fjölmiðla fyrir að fjalla ekki um málið og kallað eftir því að íslensk stjórnvöld rannsaki flugin og kanni hvort notkun Keflavíkurflugvallar í þessum tilgangi samræmist íslenskum lögum og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands.

Í fyrri umfjöllun Mannlífs kom fram að fyrirspurnir hefðu verið sendar til Isavia og utanríkisráðuneytisins vegna málsins. Svar Isavia liggur nú fyrir, en það skýrir ekki hvort eða hvernig flugið tengdist þeim brottvísunum sem BDS Ísland hefur fjallað um. Utanríkisráðuneytið benti Mannlífi á að fyrirspurnirnar ættu frekar að sendast á dómsmálaráðuneytið, og hafa þær því verið sendar á téð ráðuneyti.

Spurningar Mannlífs til dómsmálaráðuneytisins eru eftirfarandi þó svar sé komið frá ISAVIA við fyrstu spurningunni:

  1. Getur dómsmálaráðuneytið staðfest að einkaþota með skráningarnúmerið N62FF hafi tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli 10. september í tengslum við brottvísanir Palestínumanna frá Bandaríkjunum?
  2. BDS Ísland segir að þrjú önnur sambærileg flug hafi tekið eldsneyti hér á landi í apríl, júlí og ágúst, þó ekki endilega með Palestínumenn innanborðs. Hefur ráðuneytið kannað þau flug? 
  3. Ef þessar upplýsingar reynast réttar, telurðu að íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á að kanna hvort íslensk aðstaða hafi verið nýtt til að greiða fyrir brottvísunum sem kunna að brjóta gegn alþjóðalögum?
  4. Hefur ráðuneytið óskað eftir skýringum frá bandarískum stjórnvöldum eða Isavia?
  5. Hvaða heimildir hafa íslensk stjórnvöld til að koma í veg fyrir að flugvellir hér á landi séu nýttir í þessum tilgangi?
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Íris var sökuð um að vera slæm fyrirmynd á laugardagskvöldi
Fólk

Íris var sökuð um að vera slæm fyrirmynd á laugardagskvöldi

„Ég sat alveg í hnipri.“
Kallað eftir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og ofbeldismála
Innlent

Kallað eftir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og ofbeldismála

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“
Fólk

„Mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein“

Dómsmálaráðherra bætir við sig aðstoðarmanni
Pólitík

Dómsmálaráðherra bætir við sig aðstoðarmanni

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin
Fólk

Diljá Mist staðfestir sambandsslitin

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir
Fólk

Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir

Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni til frambúðar
Heimur

Selena Gomez segir nikótínveip hafa breytt rödd sinni til frambúðar

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru
Innlent

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands
Innlent

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum
Innlent

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Herforingi segir Breta þurfa að búa sig undir stríð
Heimur

Herforingi segir Breta þurfa að búa sig undir stríð

Innlent

Isavia staðfestir komu vélar sem BDS Ísland tengir við brottvísanir ICE
Innlent

Isavia staðfestir komu vélar sem BDS Ísland tengir við brottvísanir ICE

„Isavia ohf. býr ekki yfir upplýsingum um það sem spurt er um, svo sem hver tilgangur flugsins var“
Grímuklæddir lögreglumenn réðust inn og héldu skelfingu lostinni stúlku
Innlent

Grímuklæddir lögreglumenn réðust inn og héldu skelfingu lostinni stúlku

Kallað eftir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og ofbeldismála
Innlent

Kallað eftir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og ofbeldismála

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru
Innlent

Áfengi, fíkniefni og vopn í umfangsmikilli ákæru

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands
Innlent

Herdís spyr hvort landeignir Jim Ratcliffe ógni fullveldi Íslands

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum
Innlent

Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

Loka auglýsingu