
Móðir ungrar stúlku kvartaði til nefndar um eftirlit með lögreglu eftir að grímuklæddir og óeinkennisklæddir lögreglumenn réðust inn á heimili þar sem dóttir hennar var ein. Stúlkan tengdist rannsókn lögreglu ekki með neinum hætti.
Málið var tekið fyrir öðru sinni hjá nefndinni í haust eftir að ný gögn bárust sem studdu frásögn mæðgnanna.
Lögregluaðgerðin tengdist rannsókn á fíkniefnainnflutningi og beindist að leigjanda í húsinu. Lögreglan á Suðurnesjum kvaðst ekki hafa vitað að önnur íbúð væri þar.
Þegar lögreglumennirnir bönkuðu harkalega á rúðu hússins opnaði stúlkan dyrnar. Þar stóðu þrír menn með grímur fyrir vitunum. Hún varð hrædd og hljóp inn en einn mannanna elti hana, greip um hendur hennar og hélt þeim fyrir aftan bak. Stúlkan grét og kallaði á móður sína þar til lögreglukona útskýrði að mennirnir væru lögreglumenn.
Stúlkunni var haldið í um 15 mínútur. Móðirin kvartaði meðal annars yfir því að dóttir hennar hefði ekki fengið að hafa samband við sig.
Lögreglan hafði áður ranglega haldið því fram að stúlkan hefði hringt í móður sína en símagögn sýndu hið gagnstæða. Lögreglan sagði síðar að um mistök hefði verið að ræða.
Nefndin taldi háttsemi lögreglu ekki beinlínis ámælisverða en beindi þeim tilmælum til embættisins að hagsmunir barna yrðu sérstaklega hafðir í huga við lögregluaðgerðir.
