1
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

2
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

3
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

4
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

5
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

6
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

7
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

8
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

9
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

10
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Til baka

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi

„Í alvöru Stefán, er svona málflutningur boðlegur?“

Daði_Már_Kristófersson_731 (1) (1)
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherraEkki eru allir á sama máli um túlkun Stefáns á orðum Daða Más
Mynd: Stjórnarráðið/Bernharð

Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi hjá Vinstri grænum gagnrýnir efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar í Facebook-færslu og segir þúsundir Íslendinga hafa misst atvinnuna vegna aðgerða sem stjórnvöld hafi sjálf sagt nauðsynlegar til að ná tökum á verðbólgu.

Stefán vísar til fréttar þar sem Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra segir Seðlabankann hafa „spilað með líf fólks“ ef bankinn hafi vísvitandi skapað efnahagsaðstæður sem auki atvinnuleysi.

Í færslu sinni bendir Stefán á að Seðlabankinn sé að framfylgja efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Hann rifjar jafnframt upp ummæli fjármálaráðherra frá því í vor, þar sem fram kom að atvinnuleysi gæti aukist vegna aðgerða stjórnvalda gegn þensluverðbólgu.

„Það verður ekki tekið af ríkisstjórninni að henni hefur tekist að ná markmiðum sínum,“ skrifar Stefán og vísar til fjölgunar atvinnulausra og bætir síðan við:

„Atvinnulausum Íslendingum hefur fjölgað um mörgþúsund manns með tilheyrandi áhrifum á líf og sjálfsvirðingu alls þessa fólks.“

Færslan vakti mikla athygli og voru ekki allir á eitt sáttir með hana.

Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur og fyrrum varaþingmaður Pírata er einn af þeim sem gagnrýnir orð Stefáns.

„Frekar lélegt að túlka þessi orð sem svo að það sé sérstakt markmið að auka atvinnuleysi... það er augljóslega hvorki það sem hann sagði eða meinti.“

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason bendir á að um sé að ræða „hreinskilni.“

„Þetta heitir einfaldlega hreinskilni. Háir vextir draga úr umsvifum í hagkerfinu sem þýðir að sumt fólk missir atvinnuna.“

Ásdís Auðunsdóttir, veðurfræðingur og framhaldsskólakennari, húðskammar Stefán í eftirfarandi athugasemd:

„Þú setur samasemmerki milli þess að ,,það sé markmið ríkisstjórnarinnar að auka atvinnuleysi" (þín orð) og að fjármálaráðherra segi ,,óhjákvæmilegt að atvinnuleysi aukist vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar". Skoðum dæmi: Alkóhólisti kemur á vog í tveggja vikna heildræna áfengismeðferð. Meðferðaraðilinn segir óhjákvæmilegan fyligifisk að líða sársauka á meðan á afvötnun stendur. Mbl/Stefán Pálsson skrifar grein með fyrirstögnina: ,,Meðferðaraðili hefur það að markmiði að sá sem kemur í afvötnun líði vítiskvalir". Í alvöru Stefán, er svona málflutningur boðlegur? Eins og RÞI benti á í þessu viðtali þá er ríkisstjórnin að vinda ofan af ábyrgðarleysi fyrri ríkisstjórna með að boða hallalaus fjárlög. Tékki var alltaf skrifaður á seinni tíma og vaxtakostnaður ríkisins var gífurlegur.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Smiður hylltur sem hetja eftir að hann stöðvaði skotárás í skóla
Heimur

Smiður hylltur sem hetja eftir að hann stöðvaði skotárás í skóla

Mætti árásarmanninum vopnaður byssu
Miranda Hart brast í grát eftir brotthvarf Joe Lycett úr Celebrity Traitors
Heimur

Miranda Hart brast í grát eftir brotthvarf Joe Lycett úr Celebrity Traitors

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

„Það besta sem ég hef upplifað“
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni
Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Myndir
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum
Myndband
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Pólitík

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi
Pólitík

Stefán segir ríkisstjórnina hafa náð markmiði sínu um aukið atvinnuleysi

„Í alvöru Stefán, er svona málflutningur boðlegur?“
Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Loka auglýsingu