1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

9
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

10
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Til baka

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Þorgerður Katrín hafnaði því alfarið að segja sig frá málinu

Sigríður Andersen
Sigríður Á. AndersenEr fyrrverandi ráðherra og núverandi þingmaður.
Mynd: Víkingur

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, telur Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra ekki hæfa til að fara með málarekstur Íslands vegna málshöfðunar Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, fyrir EFTA-dómstólnum. Þær tókust á um málið á Alþingi í dag.

ESA vísaði máli Íslands til EFTA-dómstólsins í lok september vegna bókunar 35 við EES-samninginn. Stofnunin telur að íslensk lög tryggi ekki með fullnægjandi hætti að innleiddar EES-reglur gangi framar öðrum íslenskum lagaákvæðum þegar árekstur verður þar á milli. ESA hafði fyrst uppi athugasemdir vegna málsins árið 2012 og hóf formlegt samningsbrotamál árið 2017.

Kallaði eftir upplýsingum um varnir Íslands

Sigríður kallaði eftir svörum frá utanríkisráðherra um hvernig stjórnvöld hygðust bregðast við málshöfðuninni og hvort vinna væri hafin við greinargerð Íslands til EFTA-dómstólsins. Spurði hún meðal annars hverjir kæmu að þeirri vinnu og hverjir myndu skipa það teymi sem færi með varnir Íslands.

„Ég vil vita hvort hæstv. ráðherra hafi hafið vinnu við gerð þessarar greinargerðar, hverjir það eru sem koma að þeirri vinnu, hverjir munu skipa teymi, hvað á maður að segja, verjenda Íslands gagnvart EFTA-dómstólnum í þessari málshöfðun Eftirlitsstofnunar EFTA,“ sagði Sigríður.

Þorgerður Katrín sagði málið nú komið til meðferðar utanríkismálanefndar og að samráð yrði haft við nefndina. Hún lagði jafnframt áherslu á að stjórnvöld myndu halda uppi vörnum fyrir Ísland, en um leið standa við skuldbindingar landsins samkvæmt EES-samningnum.

„Auðvitað bind ég vonir við að það verði hægt að klára þetta fyrir þennan tíma en að sjálfsögðu munum við gera það sem þarf til að halda uppi vörnum Íslands,“ sagði Þorgerður Katrín.

ESA segir að bókun 35 geri EFTA-ríkjunum innan EES skylt að tryggja að innleiddar EES-reglur njóti forgangs gagnvart öðrum landsréttarreglum sem rekast á þær. Stofnunin telur að nauðsynlegar lagalegar tryggingar séu enn ekki fyrir hendi á Íslandi.

Segir ráðherrann ekki hæfa

Sigríður gekk lengra í seinni ræðu sinni og dró hæfi Þorgerðar Katrínar til að fara með málið í efa. Vísaði hún til afstöðu ráðherrans til skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum og spurði hvort ráðherrann ætti að segja sig frá málinu.

„Í ljósi ummæla hæstv. utanríkisráðherra í þessu svari til mín tel ég nú einsýnt að hæstv. utanríkisráðherra sé í sjálfu sér ekki hæf til þess að fara með málarekstur fyrir Íslands hönd,“ sagði Sigríður.

Hún spurði jafnframt hvort Þorgerður Katrín teldi að ESA bæri skylda til að fella málareksturinn niður yrði þingmálið um bókun 35 samþykkt fyrir 30. nóvember.

Þorgerður Katrín hafnaði því alfarið að segja sig frá málinu og sagði ágreininginn í grunninn pólitískan. Hún sagði ríkisstjórnina ætla að standa vörð um EES-samninginn og tryggja að hann héldi gildi sínu fyrir íslenskan almenning og atvinnulíf.

„Að sjálfsögðu mun ég ekki fara frá þessu máli af því að þetta er á endanum pólitík,“ sagði Þorgerður Katrín.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Maður eyðilagði yfir 1.200 vörur í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður eyðilagði yfir 1.200 vörur í matvöruverslun í Umeå

Gekk berserksgang þegar hann var beðinn um að hysja upp um sig buxurnar.
101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran
Heimur

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann
Fólk

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar
Menning

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar

Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Þorgerður Katrín hafnaði því alfarið að segja sig frá málinu
Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum
Pólitík

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda
Pólitík

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda

Loka auglýsingu