
Jón Gnarr hefur sagt sig úr þingflokki Viðreisnar og er nú þingmaður utan þingflokks. Hann segir ákvörðunina hafa verið eina þá þyngstu og erfiðustu sem hann hafi tekið á ævinni.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Jón birti á Facebook rétt í þessu, þar sem hann vísar til 48. greinar stjórnarskrár Íslands, en þar segir að alþingismenn séu eingöngu bundnir við sannfæringu sína.
Jón segist ætla að halda áfram að vinna að þeim málum sem hann hafi brunnið fyrir:
„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir; málefnum barna í alvarlegum vanda og einstaklingsfrelsi.“
Hann boðar nánari skýringar á ákvörðun sinni í þættinum Reykjavík síðdegis klukkan 14.30 og í Kastljósi í kvöld.
