1
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

2
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

3
Innlent

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk

4
Heimur

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife

5
Innlent

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

6
Innlent

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

7
Innlent

„Hvað á maður að segja þegar horft er upp á aðra eins grimmd?“

8
Innlent

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

9
Innlent

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

10
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Til baka

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, er reynslumikill stjórnandi, móðir og náttúruunnandi. Hún hefur á rúmlega tveggja áratuga ferli leitt fólk, byggt upp vinnustaðamenningu, stýrt breytingum og tekist á við krefjandi verkefni í atvinnulífi, fjölmiðlum og félagasamtökum.

Andrea Róberts
Mynd: Veronika Guls

Andrea Róbersdóttir, framkvæmdastjóri FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, hefur starfað á

mjög ólíkum vettvangi en hún hefur verið framkvæmdastjóri, forstöðumaður, mannauðsstjóri, verkefnastjóri og ráðgjafi. Þá var hún í vor tilnefnd til Stjórnendaverðlauna Stjórnvísi.

„Ég hef starfað í einkageiranum, opinbera geiranum, félagasamtökum og síðustu rúm tuttugu ár hef ég fengið tækifæri til að leiða fólk í gegnum breytingar, vöxt, sameiningar, uppbyggingu og umbreytingar. Sú reynsla hefur mótað mig sem stjórnanda en mín reynsla er sú að hægt sé að vera bæði hlýr leiðtogi og kröfuharður leiðtogi á sama tíma. Umhverfið er síbreytilegt og áskoranir fyrirtækja og stofnana endalausar en grunnlögmálin alltaf þau sömu eins og traust, tilgangur og skýr sýn. Hlutverk stjórnanda er að skapa umhverfi þar sem annað fólk getur skarað fram úr og heildin nái forskoti og svo er mikilvægt að hafa gaman að þessu öllu í leiðinni.

Ég hef verið að vinna með 80-20 hlutföll og finnst áttatíu prósent vera mjög gaman og gefandi. Ég meina, það koma lægðir yfir landið í leik og starfi og þess vegna er galið að ætla sér út í lífið haldandi að það sé alltaf gaman því sú er alls ekki raunin. Væntingastjórnun er því mikilvæg. Það þarf að láta sér leiðast, gera krefjandi hluti og læra af reynslunni. Það er bara „beisikk“ að vera með kúlu á hausnum þegar við erum að læra nýja hluti. Það eru alltaf skaflar, risastór og seig verkefni og fólk í mismiklu stuði, enda brjálað að gera víða. Ástæða fyrir því að maður er svo að hamast er að það er svo gaman að uppskera þegar þú hefur verið virkur þátttakandi og haft áhrif í góðum hópi. Það er svo margt að þakka fyrir, enda er ég mikil forréttindapía. Þá hef ég reynt að leggja gott til og hafa jákvæð áhrif á samfélagið í mínum störfum. Ég legg áherslu á að fólki líði þannig að það er séð og í gróskuhugarfari. Ég kann að meta sköpunarkraftinn, ferskar nálganir og tilraunir þegar þær eiga við en er lítið fyrir sóun og hangs hjá mér og mínu fólki. Ég fjalla gjarnan um að taka sopa úr brunahana til að setja álagið á stjórnendur í myndrænan búning og þarf verulega að passa mörkin mín. Það er fátt skemmtilegra en að hafa nóg að gera en það er mikilvægt að huga að jafnvæginu í víðasta skilningi þess orðs.“

Þarf að geta hlustað

Þegar Andrea er spurð hvað einkenni góðan leiðtoga segir hún að hann þurfi auðvitað að geta tekið ákvarðanir, sýnt kjark og haft skýra sýn. „En hann þarf líka að geta hlustað og það er nú ástæða fyrir því að við erum með tvö eyru og einn munn. Við mættum hlusta meira á hvert annað. Þekking á starfinu og starfseminni er mikilvæg að sjálfsögðu og ég hugsa svo oft til þess tíma sem ég hóf störf hjá fjarskiptafélaginu Tal hér á síðustu öld. Þar vorum við með skiptidaga hjá deildum og starfsfólki þar sem forstjórinn fór í þjónustuverið, bókhaldið upp í mastur og þannig má lengi telja. Þá dýpkaði skilningurinn á ólíkum störfum, andinn varð enn betri og starfsfólkið með tilfinningu fyrir hvað felst í ólíkum störfum og virði fyrir öllum störfum jókst. Það er þetta með virði starfa sem er svo mikilvægt að spá í að við erum ein heild eins og ólík líffæri með ólík hlutverk. Þá eru sum störf afar mikilvæg eins og móttaka þar sem fyrsta snerting er við fólk sem kemur, hringir og þar þarf að vera með allt í standi fyrir ímynd og ásýnd skipulagsheildarinnar og þar eru mál oft leyst í fyrstu snertingu. Mér finnst bestu leiðtogarnir vera þeir sem byggja fólk upp í kringum sig. Þeir hafa ekki þörf fyrir að vera alltaf í sviðsljósinu sjálfir og eru nógu öruggir til að leyfa öðrum að njóta sín - Og þeir sýna með gjörðum sínum þau gildi sem þeir tala um. „Walk the talk!“

Framúrskarandi af öllum kynjum

Stundum er talað um að munur sé á kynjunum sem leiðtogum og stjórnendum. Hvað segir

framkvæmdastjóri FKA? Hver er sýn og skoðun Andreu hvað þetta varðar?

„Til að forðast að alhæfa of mikið vil ég segja að við verðum að tryggja að allir hæfileikar fái notið sín. Það er meiri munur innan kynja en milli kynja oft og tíðum og ég hef kynnst framúrskarandi leiðtogum og stjórnendum af öllum kynjum og að mínu mati byggist framtíð atvinnulífsins á fjölbreyttari forystu. Mögulega liggur stærsti munurinn í breytunni kyn vegna þeirrar menningar sem við höfum marínerast í langt aftur í aldir. Þessi menning í okkur hefur áhrif á hegðun, viðhorf, val, væntingar og kröfur. Hlutverkin eru ólík og viðmótið sem kynin fá strax á fæðingardeildinni þegar þau eru sett í bleikt eða blátt. Þá hallar á stelpur og líka á stráka og karla í einhverjum tilfellum og ekkert grín fyrir neitt kyn að fæðast og þurfa að fara lóðbeint í fyrir fram mótað skapalón um hvernig þú átt að vera, hvað þú átt að gera, haga þér og velja þér í leik og starfi. Það væri dásamlegt að frelsa öll kyn frá alls konar bulli og endurskoða hvað telst flott, gott og æskilegt sem er enginn fasti né náttúrulögmál líkt og sumir eiginleikar sem kynjunum eru eignaðir. Dæmin sína að starfsstéttir sveiflast frá því að vera karlastéttir yfir í kvennastéttir í sögunni eins og kennarastéttin og sumt stenst ekki skoðun eins og að segja að karlar hafi ekki fínhreyfingar þegar kemur að því að stoppa í sokka en svo eru þeir frábærir hjartaskurðlæknar og vantar ekkert upp á fínhreyfingar þar á bæ. Samfélagið mótar leiðtogastíl okkar, hvernig samfélagið tekur á móti okkur og hvað telst flott, gott og æskilegt fyrir kynin að gera hefur mótandi áhrif á okkur sem manneskjur. Góðu fréttirnar eru að hæfniþættir sem mest eru metnir í dag er eitthvað sem öll kyn geta tileinkað sér. Svo vona ég að gervigreindin verði partur af þessu öllu sem stuðningur og þróist þannig að fólk komist til dæmis af færibandi yfir í skapandi verkefni. Það er mjög mikilvægt að vakta innbyggða kynjaslagsíðu er kemur að gervigreindinni og þannig má lengi telja. En jú, við getum talað okkur blá í framan af hverju konur eru svona fáar sem forstjórar í Kauphöllinni og af hverju kynjahallinn er svona mikill í hópi framkvæmdastjóra en auðvitað þarf að tækla þessa ólíku forgjöf og jafna tækifærin. Jafnréttið gerist ekki af sjálfu sér og þarf oft handaflið og lög til að koma hreyfingu á hlutina sem hefur fallið misjafnlega í kramið. Það þarf til dæmis að fara að gefa í er kemur að því að ráða konur í stöður framkvæmdastjóra til að jafna mikinn kynjahalla þar eins og tölur sýna. Nú, breytingar taka alltaf á því fólk veit hvað það hefur en er ekki með á hreinu hvað það fær og það var ekki auðvelt fyrir þær konur sem stóðu í stafni í jafnréttisbaráttunni og fyrir þær er ég þakklát. Konur sem börðust fyrir réttindum, mannréttindum fyrir okkur öll. Hvað varðar leiðtoga og stjórnendur þá er mikilvægt að hafa flottar fyrirmyndir af öllum kynjum sýnilegar fyrir komandi kynslóðir til að máta sig við. Konur eru oft að fara inn í karllæg kerfi á forsendum karla en sem betur er það að breytast og konur að koma með sitt að borðinu. Svokallaðir karllægir eiginleikar hafa verið meira áberandi í forystu en svo er nútíminn að kalla á eftir fleiri hæfniþáttum, enda mjúku málin grjóthörð. Ég persónulega er mjög áhugasöm um innsæi á tímum gervigreindar sem og sköpunarkraftinn. Mig persónulega langar gjarnan að gera hlutina aðeins öðruvísi, sjá nýja möguleika og prófa mig áfram. Sú sköpunargleði hefur fylgt mér alla tíð og ég tel hana vera einn af mikilvægustu eiginleikum mínum sem stjórnanda í dag. Breytingar krefjast nefnilega sköpunar. Leiðtogar þurfa að sjá það sem enn er ekki orðið að veruleika. Við þurfum fjölbreytt sjónarhorn, ólíka reynslu og fólk sem þorir að leiða af heilindum. Þar liggur hinn raunverulegi styrkur og ég sé að tækifærunum er að fjölga fyrir fólk með karakter af öllum kynjum.“

Mikilvægt afl

Andrea segir að hún hafi verið hvött til þess að sækja um starf framkvæmdastjóra FKA og að hún sjái ekki eftir því vegna þess að starfið sameini svo margt sem hún hefur brennandi áhuga á. Á hvað leggur hún áherslu í núverandi starfi?

„Að vera með opna hjartastöð, læra af yngra fólki, reyna að tileinka mér nýjungar en á sama tíma vera grjóthörð á að fólk gleymi ekki sögunni og þeim sigrum sem hafa unnist til sjávar og sveita er kemur að jafnrétti.“

Andrea segir að FKA snúist um leiðtogamál, jafnrétti, tengslamyndun, áhrif og framþróun í atvinnulífinu. „Ég sá þar tækifæri til að nýta reynslu mína úr rekstri til að styðja við samfélag kvenna sem vilja hafa áhrif. Í Félagi kvenna í atvinnulífinu verður þú vitni að töfrum tengslanetsins og í félaginu skapast viðskiptatækifæri sem eftir er tekið. Þar blómstra konur og geta fengið svo mikið út úr þátttöku en það er mjög misjafnt hvað konur vilja fá út úr aðild. Ég hef mikinn metnað fyrir hönd félagsins og FKA er mikilvægt afl í íslensku atvinnulífi og til okkar er leitað. Starfið er mjög fjölbreytt og ég reyni að hafa áhrif á jákvæðan hátt með því að fá fólk með mér, tengja saman ólíkar hugmyndir og skapa stemningu þar sem öll finna til sín. Það sem ég vissi alltaf var að mig langaði ekki að sitja hjá og horfa á hlutina gerast og í mínu starfi hef ég getað haft áhrif, gjarnan bak við tjöldin og skemmt mér konunglega þar. Það er margt undir húddinu eins og stjórnendur vita. Ég vildi taka þátt í að gera gott félag enn betra og hafa áhrif. Ég vildi stuðla að framförum, hjálpa konum að ná sínum markmiðum og nýta hæfileika sína. Það heillaði mig líka hvað félagið nær til breiðs hóps kvenna. Þar mætast frumkvöðlar, sérfræðingar, stjórnendur og eigendur fyrirtækja. Slík fjölbreytni er dýrmæt og á meðan ég hef starfað sem framkvæmdastjóri hef ég eignast vinkonur fyrir lífstíð, hér hafa landsbyggðadeildum fjölgað, félagið stækkað, alþjóðatengsl eru góð, hér eru hreyfiaflsverkefni, verkefni hafa sprungið út og það hefur verið geggjað.“

Áhrifamikið tengslanet

Það var fyrir rúmum aldarfjórðungi sem Jónína Bjartmarz fór fyrir litlum hópi sem átti frumkvæðið og veg og vanda að undirbúningi og framkvæmd stofnfundar FKA. Allt konur sem vildu vera á eigin forsendum og láta taka sig alvarlega og hefur FKA verið hreyfiafl frá árinu 1999 þegar félagið var stofnað. Félagið hét fyrst Félag kvenna í atvinnurekstri, FKA, en var seinna breytt í Félag kvenna í atvinnulífinu. Skammstöfunin FKA hélst sú sama eftir breytinguna en nýja nafnið endurspeglar víðtækari hóp kvenna - ekki bara þær sem reka eigin fyrirtæki, heldur stjórnendur, leiðtoga og athafnakonur úr öllum greinum atvinnulífsins.

„Öllum þessum árum síðar skyldi maður ætla að ekki væri lengur þörf fyrir félag af þessu tagi og við gætum öll verið sammála um að jafnrétti hefði náðst. FKA var stofnað af hópi kvenna með það markmið að efla stöðu kvenna í íslensku atvinnulífi. Áherslan var á að skapa vettvang fyrir konur til að tengjast, læra hver af annarri og þróa leiðtoga- og stjórnunarhæfileika sína. Í FKA í dag eru landsbyggðadeildir og hreyfiaflsverkefni eins og Jafnvægisvogin, Viðurkenningarhátið og Mentorverkefni svo eitthvað sé nefnt. FKA á að vera leiðandi afl í að opna fleiri tækifæri og auka jafnvægi og fjölbreytileika í atvinnulífinu. Sýnileikadagur og fleiri lykilviðburðir nefnda og deilda byggja upp og styrkja konur og auka áhrif þeirra í atvinnulífinu. FKA hefur margs konar áhrif á íslenskt atvinnulíf, ekki bara með hefðbundnu félagsstarfi heldur er félagið áhrifamikið tengslanet og hagsmunafélag kvenna á Íslandi. Félagið var stofnað með það markmiði að efla stöðu kvenna í atvinnulífinu í víðum skilningi og mér finnst það hafa tekist á löngum köflum. Alltaf er ég stolt af þeim sem hófu þessa vegferð og eru steypustyrktarjárn félagsins en það er enn verk að vinna. Þegar litið er til stöðu dagsins í dag erum við að mörgu leyti til fyrirmyndar og fremst í heiminum í jafnrétti og velsæld. Það er samt víða þó nokkuð í land er kemur að kynjajafnrétti og má þá nefna ólíka forgjöf kynja, virði starfa, þriðju vaktina á heimilum, laun, Kauphöllina og fleira. Launamunurinn fylgir okkur út lífið og mikilvægt er að varða sína leið og gæta að réttindum sínum og hagsmunum til framtíðar og eftir árum er kemur að lífeyrismálum – og líka heilsunni til að geta síðan notið þess alls.“

Jafnvægisvogin

Andrea segir að stærstu sigrar FKA síðustu ár sé vöxtur félagsins á landsbyggðinni og flugið sem nokkur verkefni hafa farið á og má nefna Jafnvægisvog FKA í þessu sambandi.

„Við erum með deildir á Norðurlandi, Austurlandi, Suðurlandi, Suðurnesjum og Vesturlandi. Það eru öflugir leiðtogar á landsbyggðunum sem greina þarfir á svæðum og leiða öflugt starf undir regnhlíf FKA. Jafnvægisvogin er öflugt áhrifaverkefni félagsins þar sem unnið er með mögnuðum samstarfsaðilum, verkefni sem var sett á laggirnar árið 2018 með það skýra markmið að stuðla að auknu jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar í íslensku atvinnulífi. Verkefnið var frá upphafi hugsað sem hreyfiafl, ekki lagaskylda heldur hvati, byggt á þeirri einföldu staðreynd að jafnrétti gerist ekki af sjálfu sér. Það er afleiðing meðvitaðra ákvarðana, mælinga og gagnsæis. Jafnvægisvogin mælir kynjahlutföll í efsta lagi stjórnunar og hefur skapað bæði umræðu og aukið aðhald varðandi þátttöku kvenna í stjórnunarstöðum. Markmiðið er að hlutfall hvors kyns verði að lágmarki 40% í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, opinberra stofnana, lífeyrissjóða og sveitarfélaga. Auðvitað hvetjum við vinnustaði til að ganga til liðs við verkefnið með undirritun viljayfirlýsingar sem finna má á heimasíðu FKA, setja sér skýr markmið og fylgja þeim eftir. Jafnvægisvogin stendur jafnframt fyrir greiningum, fræðslu og viðburðum, fylgist með þróun kynjajafnvægis og veitir árlega viðurkenningar til þeirra þátttakenda sem hafa náð markmiðinu. FKA hefur einnig unnið markvisst að því að auka sýnileika kvenna í fjölmiðlum og opinberri umræðu og félagskonur kallaðir til sem sérfræðingar, stjórnendur og álitsgjafar sem er frábært. Svo er það vöxtur hverrar konu sem setur sig á dagskrá og tekur þátt í starfinu sem er alveg magnaður. Þátttaka í Mentorverkefni FKA hefur til dæmis hjálpað fjölda kvenna að taka næstu skref á sínum starfsferli, þær hafa til dæmis fengið kjarkinn og hvatningu til að taka stökkið. Með því að tengja saman reynda leiðtoga og yngri konur hefur skilað sér í auknu sjálfstrausti, sterkari tengslum fyrir bæði mentor og menti og skilað fleiri konum í ábyrgðarstöður. Allt sem félagið er að gera mótar þetta samfélagslega afl sem við erum. Við höfum líka verið að stækka og opna dyr, byggja brýr með nýjum nefndum eins og Nýja Íslendinga (New Icelanders) og margs konar samstarfi sem hefur gert félagið fjölbreyttara en áður.“

Jafnrétti er ákvörðun

Andrea hefur kynnst mörgum konum í viðskiptalífinu og atvinnulífinu í gegnum núverandi

starf. Eru konur komnar í gegnum glerþakið fræga?

„Nokkrar, þeim fer fjölgandi en það gengur hægt að fjölga þeim og glerþakið er þarna enn og smá þykktarmunur á því eftir sviðum. Marglaga og margs konar ástæður fyrir stöðunni og tölur sýna að markmiði um kynjajafnrétti verður náð í fyrsta lagi eftir hálfa öld miðað við hraða í nýráðningum í stjórnunarstöðum. Kynjalögin um árið höfðu áhrif og lög eru mjög mikilvæg, við sjáum það á fyrirtækjum sem lögin eiga við. Langflestir forstjórar eru karlmenn, mun fleiri karlar eru í framkvæmdastjórastöðum og sem stjórnarformenn og þar fram eftir götunum. Þar sem skýrar reglur hafa verið settar hefur orðið raunveruleg breyting og er alveg ljóst að jafnrétti er ákvörðun. Forysta er enn verulega einsleit og það er okkur að breyta stöðunni. Mér finnst mikilvægt að halda áfram að skapa tækifæri, tala um fyrirmyndir og tryggja að hæfileikar kvenna fái notið sín. Sem fyrr segir taka breytingar á. Við munum til dæmis raunir ráðherra sem setti lög um að banna reykingar á skemmtistöðum. Það var helvíti á jörðu fyrir ráðherra um tíma, umræðan og mótspyrnan, en öll sjáum við að það er eina vitið í dag. Það er stundum sem fólki finnst líka lög og reglur vera forræðishyggja en ég vil kalla það umhyggju. Sjáið til dæmis með reglur um öryggisbeltin í bílum sem bjarga lífum. Auðvitað var geggjað að vera laus í skottinu hjá reykjandi foreldrum og enginn í belti en við sjáum að þetta var glórulaust þegar við lítum til baka. Fólk þarf tíma. Fólk þarf upplýsingar. Fólk þarf að skilja tilganginn.“

Reynslumiklar og rosalegar

Þegar Andrea er spurð hvað henni finnist einkenna íslenskar konur sem náð hafa langt í viðskiptalífinu segir hún: „Mér finnst þær almennt svakalegir töffarar. Svo eru þær oft teflonhúðaðar. Mér finnst þær með mikla innistæðu og dásamlegt að verða vitni að því þegar þær fara í hlutverk mentora. Þær eru nefnilega margar hættar að vera ungar og efnilegar heldur eru reynslumiklar og rosalegar. Það er gjarnan tækifæri fyrir félagskonur FKA að tengjast þessum fyrirmyndum á dýpri hátt.“ Hvar er pottur brotinn á meðal kvenna í viðskiptalífinu og atvinnulífinu?

„Það er þörf á að breyta samfélaginu en ekki konum og fleiri háskólagráður er það sem konur þurfa alls ekki. Nóg af þeim. Með fæðingartíðnina eins og hún er í dag er mikilvægt að fara að skoða hlutina heildstætt og setja okkur í stellingar um hvernig við getum öll haft tækifæri í atvinnulífinu en á sama tíma viðhaldið okkur sem þjóð. Binda þannig um hnútana að fólk eignist börn, samfélagið styðji við það og konum sé ekki refsað fyrir að standa í því að eignast blessuð börnin sem við elskum endalaust og skilyrðislaust. Svo er það nú þannig að þegar baráttan er horfin úr lifandi minningu þá er þörf á að standa vaktina því það er stutt í bakslag og stöðnun þegar fólk áttar sig ekki á að það hefur verið barist fyrir þessum réttindum með svita, blóði og tárum.“

Hverju vill Andrea ná í núverandi starfi og eru einhverjar nýjungar fram undan?

„Ég held áfram að byggja upp fólk og verkefni á meðan ég er í FKA. Félagið er með eitt þúsund og fimmhundruð félagskonur úr öllum greinum atvinnulífsins og að reka slíkt félag, samræma stjórnir, deildir, nefndir, samstarfsaðila og viðburði krefst mikillar lagni og það er alltaf markmiðið að gera betur í dag en í gær. Það þarf seiglu að halda utan um eitt stærsta kvenleiðtoganet landsins og það er gert með öflugri stjórn og virkum félagskonum. Þá eru verkefni sem snúa að starfseminni inn á við og út á við ávallt í þróun. Það er stöðugt verið að þjónusta atvinnulífið, félagskonur og margir viðburðir eru fram undan. Við erum að fara að auglýsa eftir tilnefningum fyrir Viðurkenningarhátíðina okkar sem verður í janúar og viðurkenningarathöfn Jafnvægisvogarinnar er 14. október næstkomandi. Jafnvægisvog FKA hefur vaxið úr verkefni yfir í mikilvægan mælikvarða íslensks atvinnulífs í höndum á öflugu Jafnvægisvogarráði og verkefnastjóra og við stoltar af því. Stærra og hraðara er ekki endilega alltaf best en á sannarlega við þegar þú vilt ná árangri í jafnréttismálum og bæta samfélagið. Innan félagsins höldum við áfram að byggja upp kærleikdrifna menningu sem kemur konum inn á radar með kassann út. Ég vil skilja eftir mig vinnustað, verkefni og samfélag í betra ástandi en þegar ég kom að þeim. Fyrir mér er það kjarni góðrar forystu. Þegar ég hugsa um framtíðina hugsa ég fyrst og fremst um áhrif en ekki stöðu. Ef ég get skilið eftir mig vinnustaði sem eru sterkari, fólk sem trúir meira á eigin getu og samfélag sem er aðeins réttlátara en það var áður þá tel ég að ég hafi náð miklu.“

Reynslunni ríkari

Andrea á tvo syni og mann og býr fjölskyldan í Garðabæ.

„Við vildum vera hluti af sveitasamfélagi og bjuggum fyrstu ár eldri stráksins í Kjós í stórum skógi á landbúnaðarlóð en fluttum svo í Garðabæinn til ömmu aldarinnar, mömmu minnar, sem hefur verið ein mesta stoð og stytta í lífinu. Það er engu líkt að eignast börn og drengina elska ég endalaust. Það er dásamlegt að sjá þá þroskast og verða sjálfstæða. Það er svo magnað að hugsa til þess að störfin sem þeir fara að vinna þegar þeir verða fullorðnir er ekki einu sinni búið að finna upp. Það eru svo mörg tækifæri hjá ungu fólki og ég get lært svo margt af þeim. Með manninum mínum finnst mér best að vera í iðnaðarmannagallanum eða á fjöllum. Yngri drengurinn minn er 15 ára og stóri strákurinn minn nýorðinn 18 ára og því miklar breytingar. Við höfum alltaf lagt áherslu á að hafa símalausa samveru við matarborðið og borða saman kvöldmat. Við höfum gaman að því að ferðast, hlusta á tónlist og fara í sund. Þá er ekki eins spennandi að vera með mér eins mikið og áður en þeir segja að ég sé besta mamman. Það er mín mesta gæfa að hafa unnið mömmulottóið og fengið drengina í mitt líf – þeir eru skólastjórarnir í lífinu og ævintýraráðherrar.“

Andrea er spurð um lífsreynslu sem hefur mótað hana og nefnir hún ævintýrlega ferð. Hinn stóri heimur heillaði og árið 2006 seldi hún bílinn og íbúðina og fór ein í bakpokaferðalag í nokkra mánuði um Suðaustur-Asíu.

„Það var eins og að krækja sér í eina ef ekki tvær meistaragráður. Það gat verið mjög flókið að vera ung kona ein á ferð með allt á bakinu en eins og alltaf, án þess að vaða út í einhverja vitleysu, þá vil ég ekki láta óttann skemma fyrir mér og fór í þessa mögnuðu ferð. Ég gisti á farfuglaheimili og gistiheimilum og ferðaðist til nokkurra landa og kom heim læsari á ólíka menningu og reynslunni ríkari. Ég kynntist alls konar fólki, borðaði alls konar mat, gisti á furðulegum stöðum, skoðaði ótal staði og andaði að mér framandi menningu. Þetta bakpokaferðalag er eitt af því sem kemur upp í hugann þegar ég er spurð um lífsreynslu sem hefur mótað mig. Annað sem kemur upp í hugann er þegar ég 15 ára og Hrund vinkona mín 16 ára vorum að vinna sem rekstrarstjórar á hamborgarastað myrkranna á milli til að safna fyrir ferð til Ibiza. Við vorum búnar kaupa miða til að fara einar út í frí og fjör en síðan fengum við ekki útborgað. Nú eins og bestu vinkonur gera á gelgjunni er að fá sér lögfræðing. Við fengum okkur lögfræðing til að fá launin og án þess að fara í málareksturinn og alla sólarsöguna þá enduðum við í eftirminnilegri ferð einar á Ibiza um sumarið eins og til stóð. Þegar ég sé fimmtán ára unglinga í dag þá sé ég alltaf betur hvað við vorum seigar að fá okkur lögfræðing og standa í hárinu á glæpamönnum. Ef ég væri lögfræðingur og fengi okkur vinkonurnar inn á skrifstofu myndi ég espast öll upp og vilja allt fyrir þessi krútt gera. Ég er svo stolt af þessum stelpum að hafa fengið sér lögfræðing og mér finnst við svo hugrakkar. Það er þetta með hugrekkið, það er smitandi og það er svo gaman að hafa víkkað þægindahringinn og haft kjark til þess snemma á lífsleiðinni. Ég er þakklát fyrir vináttuna.“

Föðurmissir

Þegar kemur að erfiðleikum sem hafa mótað Andreu segir hún að nokkur atriði komi upp í huga sinn en hafa þurfi í huga að hún er heppin kona hér á Íslandi. „Ég hef vatn, fjölskyldu, vini og hér er ekki stríð. Ég hef öll vitin til að sækja í og er almennt heilsuhraust. Það eru alltaf einhverjar áskoranir hjá öllum en það sem kemur upp í huga mér núna er missir, að missa pabba minn um jólin. Það eina sem er öruggt í þessu lífi er svo dauðinn en mikið ógurlega er erfitt að missa foreldri. Pabbi minn lést, var með krabbamein og það voru mikil átök fyrir hann að fella grímuna, játa sig sigraðan og tapa svo baráttunni. Hann var stórglæsilegur maður, ávallt mikill ævintýramaður og virkur náttúruunnandi og að sjá hann missa kraftinn til að lifa lífinu lifandi, hætta að geta spilað á gítarinn og séð um sig sjálfur mun hafa áhrif á mig út lífið. Það varð til þess að ég hef nú í eitt ár hugað betur að heilsunni í von um að vera sjálfbjarga út lífið og efla mig nú og leggja inn í von um að halda styrk til að gera þá hluti sem mér finnst sjálfsagt að gera í dag. Það á svo allt eftir að koma í ljós en þetta hefur verið hvati til þess að rífa mig upp og fara loksins í leikfimi nokkra morgna í viku. Það er betra að vera elstur í ræktinni en yngstur á hjúkrunarheimili eins og ein góð kona sagði. Svo held ég áfram að ganga á fjöll eins mikið og ég get, tek stigana í vinnunni og held mér virkri. Svo líður mér að sjálfsögðu betur og kem alltaf glaðari út í daginn eftir leikfimi. „Þér verður að líka vel við þig,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir einu sinni og það er mikið til í því. Þú verður svo glöð með þig þegar þú gerir sem þú segist ætla að gera eins og að mæta í ræktina.“

Súrefnið ekki ofmetið stöff

Andrea talar um að það sé svo margt erfitt á meðan á erfiðleikum í lífinu stendur.

„Mér finnst ég almennt hafa og hef haft kjark til að taka erfiðar ákvarðanir og ég er umburðarlyndari gagnvart sjálfri mér með árunum. Þetta hefur einfaldað lífið og gert það betra og fækkað erfiðleikum. Þrjósk bjartsýni einkennir mig sem gerir glasið almennt hálffullt en svona almennt þá hef ég minni þolinmæði fyrir leiðindum og er almennt sáttari en ekki síður sterkari og styrkur snýst ekki um að vera alltaf sterk. Styrkur snýst stundum um að viðurkenna takmarkanir sínar, leita sér stuðnings og byrja aftur.“

Þegar álag og streita gera vart við sig fer Andrea gjarnan á sumrin út í garð og reitir arfa í blómabeði og fær mold undir neglurnar eða þá að hún fer í göngutúr. „Þar hef ég oft fundið bestu lausnirnar við erfiðum verkefnum og þar fæ ég gjarnan nýjar hugmyndir. Í náttúrunni hleð ég batteríin og svo finnst mér sund og vatnið heilandi. Í náttúrunni hef ég alltaf fundið ró, jafnvægi og ákveðna jarðtengingu. Valin einvera hentar mér mjög vel og þá sérstaklega undir miklu álagi. Súrefnið er ekki ofmetið stöff og að anda djúpt gerir mikið en í stressi öndum við grunnt og við förum á sjálfstýringu og þannig á mis við margt, enda álag og streita í of stórum skömmtum snarhættulegt ástand. Ef ég er pirruð þá eru miklar líkur á að ég er svöng og ætti að vinda mér í að borða. Að hækka í tónlist gerir mér ávallt gott, enda tónlist mikið meðal. Svo er það náttúran sem gerir allt betra þegar eitthvað er erfitt og stífla í kerfinu og svefn er eitthvað sem hefur alltaf góð áhrif og gagnast öllum. Þá elska ég að fara á myndlistasýningar og söfn, enda hef ég safnað samtímalist í þrjátíu og fimm ár. Það var ógeðslega gaman með öllum miðaldra og gömlu körlunum á myndlistauppboðum hér á síðustu öld.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga
Myndband
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

Erika ýtti við Cörlu þegar úrslitin voru ljós og hrópaði „aldrei!“
Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag
Innlent

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu
Innlent

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni
Myndir
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga
Innlent

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar
Heimur

Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni
Innlent

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni

Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, er reynslumikill stjórnandi, móðir og náttúruunnandi. Hún hefur á rúmlega tveggja áratuga ferli leitt fólk, byggt upp vinnustaðamenningu, stýrt breytingum og tekist á við krefjandi verkefni í atvinnulífi, fjölmiðlum og félagasamtökum.
Breyttur heimur sem verður aldrei eins
Viðtal
Stjórnandinn

Breyttur heimur sem verður aldrei eins

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert
Viðtal
Stjórnandinn

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla
Viðtal
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

Loka auglýsingu