
Íslenskir hönnuðir og listafólk benda ferðamönnum á að leita út fyrir hefðbundnar ferðamannaslóðir í Reykjavík og upplifa borgina eins og heimamenn gera. Meðal þess sem mælt er með eru sundlaugar í úthverfum, veitingastaðir, listasöfn og gönguferðir við sjávarsíðuna.
Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun lífsstílsmiðilsins Coveteur um Reykjavík. Í umfjölluninni deila fatahönnuðirnir Steinunn Sigurðardóttir og Hildur Yeoman, ásamt ljósmyndaranum og stílistanum Sögu Sig, sínum uppáhaldsstöðum. Steinunn segir Reykjavík einkennast af sérvisku og óvæntum smáatriðum og telur ferðamenn stundum kynnast útgáfu af borginni sem hafi að miklu leyti verið búin til sérstaklega fyrir þá. Borgin hafi hins vegar mun meira upp á að bjóða.
Fjölmargir staðir eru sérstaklega nefndir þegar kemur að gistingu. Þar eru Reykjavík EDITION við Hörpu, 101 Hotel á Hverfisgötu og Hótel Borg við Austurvöll. Einnig er bent á The Retreat við Bláa lónið fyrir þá sem vilja fara út fyrir höfuðborgina og gera dvölina við lónið að stærri hluta ferðarinnar.
Sundmenning Íslendinga fær mikið vægi. Steinunn mælir með Sundhöll Reykjavíkur en Hildur bendir sérstaklega á Árbæjarlaug og Breiðholtslaug og segir ferðamenn eiga að prófa sundlaugar í úthverfunum. Saga mælir með Sky Lagoon og Hvammsvík í Hvalfirði. Einnig er minnst á SwimSlow við Aðalstræti.
Veitingastaðirnir eru ekki síður fjölmargir. Hósiló er í sérstöku uppáhaldi hjá Hildi og Saga mælir einnig með staðnum. Þá eru Sumac, SKÁL, Dill, ÓX, La Primavera, Fish Company og Kaffi Vest nefndir. Hildur bendir auk þess á Röntgen fyrir þá sem vilja dansa fram eftir nóttu. Steinunn segir kaffihúsið á Kjarvalsstöðum bjóða upp á besta brunchinn í bænum.
Listalíf borgarinnar fær einnig mikið rými. Steinunn mælir með i8 Gallery, BERG Contemporary, Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og Þjóðminjasafni Íslands. Marshallhúsið á Granda er sömuleiðis nefnt, en þar eru meðal annars Nýlistasafnið, Kling & Bang og i8 Grandi. Þá bendir Steinunn á Sigurjón Ólafsson Museum í Laugarnesi og segir gönguna þangað meðfram sjávarsíðunni vera hluta af upplifuninni.
Hildur mælir jafnframt með Viðey fyrir gönguferð og lautarferð. Steinunn bendir ferðamönnum á Þingholtin, höggmyndagarð Einars Jónssonar, Laugardal og Grasagarðinn auk Elliðaárdals.
Meginráð hennar til ferðamanna eru að fara aðeins lengra en hefðbundnar ferðamannaslóðir, velja óvænta leið og leyfa forvitninni að ráða för. Það séu oft óvæntu staðirnir og litlu augnablikin sem sitji lengst eftir í minningunni.
