1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

4
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

5
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

6
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

7
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

8
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

9
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

10
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Til baka

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Reynir Pétur var fjögurra mánaða þegar hann veiktist af heilahimnubólgu

Reynir Pétur á Sólheimum
Mynd: Golli

Reynir Pétur Steinunnarson vakti athygli landans árið 1985 þegar hann gekk hringinn í kringum landið meðal annars til að vekja athygli á málefnum fatlaðra og safna fyrir byggingu nýs íþróttahúss að Sólheimum. Reynir Pétur fæddist heilbrigður en fékk heilahimnubólgu nokkurra mánaða gamall og tæplega fjögurra ára flutti hann á Sólheima þar sem hann hefur búið síðan. Hann talar í viðtali við Mannlíf meðal annars um æskuna, lífið á Sólheimum, gönguna, fálkaorðuna og dauðann. Hér fyrir neðan má sjá brot úr viðtalinu.

Boð og bönn

Það var haustið 1948 sem Reynir Pétur kom í heiminn í Reykjavík.

„Bíddu róleg. Nú skulum við athuga svo þú vissir um söguna mína áður. Ég fékk heilahimnubólgu þegar ég var lítill. Ég var þriggja fjögurra mánaða. Ég var baby. Veikin virðir ekki landamæri. Svo kom heimildarmynd um mig 2010 og það var viðtal við Gunnu, systur mína. Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður. Heilbrigt barn. Fínt barn. Svo bara varð hann veikur. Mjög veikur. Upp úr því verður þroskinn svolítið öðruvísi. Þetta var stór heilli,“ segir hann og á við fyrrnefnt viðtal við systur sína, „en þá vissi ég að ég var algjörlega í lagi þegar ég fæddist. Og ef ég hefði verið í lagi, ekki veikst, alist upp í bænum kannski, hitt konu og eignast börn. En æi, það kom bara veiki. Enda tók veikin mörg börn undir sig. Af hverju? Þetta var faraldur. Þetta er eins og flensa. Kíghósti. Nefndu það. Þetta flyst á milli landa. Ég veit ekki hver fjandinn það er. Bara óheppni má segja. Ég spurði svo systur mína hversu veikur ég var. Ég hélt ég hefði verið smá veikur. Nei. Hún sagði: „Þú varst mjög veikur. Þú varst næstum því farinn.“ Svo ég hugsaði ég slapp samt vel. Kem hingað og alist upp hér. Ég kem ekki fyrr en hvað þriggja ára. Ég var að verða fjögurra ára. Þá var Sesselja forstöðukona en hún gat verið svakalega ströng. Ég spurði einu sinni systur mína hvort hún vissi hvort foreldrar mínir reyndu að spyrja Sesselju að fá drenginn yfir helgi. Já. Það var reynt. Og hún neitaði.“

Reynir Pétur á stóra fjölskyldu sem er dugleg að heimsækja hann, bjóða honum heim og fara í bíltúra með hann en hálfsystkinin eru sjö. Reynir Pétur er spurður um æskuminningar.

„Ég hafði gaman af mörgu. Það voru kringlótt tæki úti í geimnum eins og kúluboltinn minn. Þetta var svona bolti með hring utan um og það voru margir gluggar á þessu. Þetta var á fjórum fótum,“ segir hann og á við geimfar. „Þetta var alveg meiriháttar,“ segir hann með áherslu. „Og ég hafði gaman af mörgu. Ég hafði gaman af fánum. Ég hafði gaman af músík. Ég hafði gaman af mörgum hlutum. Ég var með alls konar hugmyndaflæði. Ég ólst upp á Sólheimum en auðvitað voru stundum þröskuldar sem maður steig á. Sem maður steig á glerbroti. Það voru boð og bönn og þú áttir að fara eftir reglum og ef þú gerir ekki svona þá færðu skammir. Og allt eftir götunum. Þú þurftir að fara eftir reglum. En ég fann ekki mikið fyrir því af því að ég var svo bissí af áhugamálum. Hefði ég ekki verið með áhugamál þá hefði ég verið að spá í spilin. Ég var bara bissí sem betur fer. En annars hafa Sólheimar gefið mér mikla ferska minningu. Ég fór oft í göngutúra í gamla daga. Þá var skylda að fara út. Það var farið með börnin út að labba. Og ég lenti í því að vera sem eitt af börnunum. Þetta var skylda.“

Voru mörg börn á Sólheimum á þessum tíma?

„Já já. Ég man ekki hvað þau voru mörg en það var svolítið góður slatti af börnum. Hefur hangið yfir svona þrjátíu manns með öllu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Lengi lifi Carrick! Þetta er eina ljósið í myrkrinu!“
Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Reynir Pétur var fjögurra mánaða þegar hann veiktist af heilahimnubólgu
Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar
Myndband
Fólk

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu
Myndir
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Loka auglýsingu