
Tölvupóstar úr safni tölvupósta sem var stolið af reikningum þýska hægriöfgaflokksins Valkostur fyrir Þýskaland (AfD) virðast stangast á við fyrri yfirlýsingar Alice Weidel, leiðtoga flokksins, um ólöglegt kosningaframlag, að því er fréttamiðillinn Der Spiegel greindi frá í gær.
Niðurstöðurnar koma fram í safni meira en 420.000 innri tölvupósta AfD sem birtir voru á netinu á mánudag. Blaðamenn vinna enn að því að fara yfir gögnin.
Tölvupóstarnir, sem Der Spiegel, sjónvarpsstöðin ZDF og austurríska dagblaðið Der Standard hafa greint, benda til þess að Weidel hafi vitað af fyrirhuguðum fjárframlögum tengdum þingkosningabaráttu hennar árið 2017 nokkrum vikum fyrr en hún hefur áður sagt.
Samkvæmt frétt miðlanna upplýsti Weidel þáverandi gjaldkera flokksins í tölvupósti í júlí 2017 um að henni hefði verið tilkynnt um fjárframlögin. Þegar hneykslið komst síðar upp sagði Weidel hins vegar að hún hefði fyrst frétt af fjármununum í september sama ár og hefði í kjölfarið beitt sér fyrir því að þeir yrðu endurgreiddir.
Greiðslurnar námu alls 132.000 evrum, jafnvirði rúmlega 18.000.000 króna, og fóru í gegnum milliliði í Sviss. Málið varð eitt umfangsmesta hneykslið vegna fjármögnunar stjórnmálaflokka í sögu AfD.
Stjórnmálaflokkum í Þýskalandi er óheimilt að taka við fjárhagslegum stuðningi frá aðilum utan Evrópusambandsins. AfD var sektaður um 396.000 evrur vegna málsins.
Flokkurinn hefur sagt að hann muni ekki svara fyrirspurnum um hvort tölvupóstarnir séu ósviknir og hvatt fjölmiðla til að dreifa ekki efni sem tengist gagnastuldinum.
Tölvuþrjótarnir sögðu dagblaðinu Die Zeit á fimmtudag að þeir hefðu birt gögnin, sem innihalda einnig skjöl og persónulegar upplýsingar, í nafni gagnsæis og ábyrgðar gagnvart almenningi. Eigendur vefsíðunnar þar sem gögnin voru birt svöruðu ekki tölvupósti Reuters þar sem óskað var eftir athugasemdum.
Gögnin sem lekið var gætu aukið þrýsting frá sumum stjórnmálamönnum og samtökum borgaralegs samfélags sem vilja banna flokkinn. Þeir telja að AfD ógni lýðræðislegri stjórnskipan Þýskalands.
AfD, sem hefur mælst með mest fylgi í landskönnunum, hafnar þeim ásökunum og segir þær sprottnar af pólitískum hvötum.
Þýska innanlandsöryggisstofnunin, sem gæti lagt mat sitt til grundvallar hugsanlegu banni við flokknum, sagði að hún tjáði sig almennt ekki um innri starfsemi sína. Hún svaraði því ekki hvort til stæði að rannsaka málið.
