
Hin 75 ára gamla Miyoko Seto segist aldrei hafa verið hamingjusamari en nú, fimm árum eftir að hún hóf störf í japönskum klámiðnaði. Seto var sjötug þegar hún ákvað að söðla um eftir áratugi þar sem fjölskyldan hafði verið í forgangi.
Seto hafði þá gengið í gegnum tvö hjónabönd og var fráskilin. Hún hafði lengi verið heimavinnandi og var orðin fjárhagslega háð dóttur sinni. Þegar hún reyndi að komast aftur út á vinnumarkaðinn var henni ítrekað hafnað vegna aldurs.
Vendipunkturinn varð þegar hún ræddi stöðu sína við dóttur sína. Seto rifjaði þá upp að henni hefði árum áður verið boðið að starfa í klámiðnaði en hún hafnað því. Dóttir hennar hvatti hana til að kanna þann möguleika og fylgdi henni síðar á skrifstofu umboðsskrifstofu sem sérhæfir sig í eldri konum.
Seto skrifaði undir samning samdægurs og lék á næstu fjórum árum í 17 fullorðinsmyndum. Hún segir reynsluna hafa verið frelsandi og að hlýja og umhyggja samstarfsfólks hafi haft mikil áhrif á hana.
Seto giftist fyrst 24 ára og eignaðist tvær dætur. Hún skildi tíu árum síðar og varð einstæð móðir. Hún giftist aftur 45 ára en segir nánd hafa verið lítil í því hjónabandi. Að hennar sögn liðu nær þrír áratugir án kynlífs áður en hún hóf nýjan feril.
Þegar ferli hennar í fullorðinsmyndum lauk ákvað Seto að hefja störf á vændishúsi sem sérhæfir sig í eldri konum. Þar starfar hún enn og segir viðskiptavini sína vera á mjög breiðu aldursbili.
Tekjurnar hafa gert Seto kleift að leggja fyrir til ferðalaga. Hún segist ekki hafa áhyggjur af því hvað ættingjum kunni að finnast um starf hennar og vonast til að geta haldið áfram fram á áttræðisaldur.
Seto segir breytinguna hafa gjörbreytt viðhorfi sínu til lífsins og kynlífs og lýsir stöðu sinni í dag með einföldum hætti. Hún hafi aldrei verið hamingjusamari.
