1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

5
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

8
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

9
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

10
Innlent

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina

Til baka

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

„Mestur tími fanga fer í að horfa á hvíta veggi ganga og annarra rýma eða sjónvarp“

margrét löf klippt
Margrét Löf
Mynd: Facebook

Sigurður Guðni Guðjónsson, lögmaður Margrétar Höllu Hansdóttur Löf, gagnrýnir aðstæður fanga á Hólmsheiði og segir fangelsið ekki henta til langvarandi vistunar. Hann telur jafnframt mikilvægt að horft verði til reynslunnar af Hólmsheiði við uppbyggingu fyrirhugaðs öryggisfangelsis í Árborg.

Margrét Halla hefur setið í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði frá 11. apríl 2025. Landsréttur staðfesti nýlega 16 ára fangelsisdóm yfir henni fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili fjölskyldunnar í apríl í fyrra og ráðist á móður sína.

Sigurður fjallar um aðstæður Margrétar Höllu í færslu á Facebook og segir dagana langa fyrir fanga á Hólmsheiði. Útivist sé takmörkuð, aðstaða til líkamsræktar bágborin og lítið sé um uppbyggilega vinnu eða afþreyingu.

„Mestur tími fanga fer í að horfa á hvíta veggi ganga og annarra rýma eða sjónvarp. Þetta umhverfi bætir ekki andlega heilsu fanga,“ skrifar Sigurður.

Hann gagnrýnir jafnframt hönnun fangelsisins og segir það líta vel út að utan en að reynslan af því sýni að leggja þurfi meiri áherslu á starfsemina innan veggja fangelsa.

„Fullyrða má að betra sé að eyða minna fé í umbúðir en meira fé í innihald þegar kemur að fangelsum og refsingum,“ skrifar hann.

Sigurður vísar þar til fyrirhugaðs öryggisfangelsis í Árborg, sem áætlað er að kosti um 30 milljarða króna. Hann telur hættu á að kostnaðurinn verði mun meiri þegar framkvæmdum lýkur og gagnrýnir að mikið virðist lagt upp úr útliti mannvirkisins.

Þá segir Sigurður að ýmis úrræði sem Fangelsismálastofnun hafi kynnt virðist ekki standa gæsluvarðhaldsföngum til boða. Hann segir meðal annars að erindi Margrétar Höllu um að fá að fara að Sogni, þar sem hún gæti notið meira frelsis, hafi ekki verið svarað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

„Lærdómurinn var sá að seiglu er ekki hægt að byggja upp í miðri kreppu einni saman“
Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan
Heimur

Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju
Heimur

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney
Innlent

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu
Innlent

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu

Bananamaður í Biden-grímu kom lögreglu á óvart
Heimur

Bananamaður í Biden-grímu kom lögreglu á óvart

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum
Innlent

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael
Innlent

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple
Pólitík

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple

Fjarlægur útvarpsblossi gæti afhjúpað leyndardóm úr frumbernsku alheimsins
Heimur

Fjarlægur útvarpsblossi gæti afhjúpað leyndardóm úr frumbernsku alheimsins

Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

„Lærdómurinn var sá að seiglu er ekki hægt að byggja upp í miðri kreppu einni saman“
Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum
Innlent

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney
Innlent

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu
Innlent

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu

Loka auglýsingu