
Lögregla í bænum Watauga í Texas hefur brugðist við óvenjulegu atviki sem náðist á dyrabjöllumyndavél við heimili á sunnudagskvöld. Þar sést óþekktur einstaklingur ganga upp að húsinu með banana í hendi og grímu sem líkist Joe Biden, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir andlitinu.
Atvikið átti sér stað um klukkan 20:05 sunnudaginn 18. október í Watauga, skammt norðan við Fort Worth, að því er FOX 4 í Dallas greinir frá.
Á upptökunni sést einstaklingurinn nálgast útidyr hússins klæddur bol með orðinu FREEDOM á bringunni. Hann strýkur síðan fingrunum tvisvar yfir myndavélina áður en hann byrjar að borða banana í gegnum op á grímunni.
Að því loknu yfirgefur hann svæðið.
Lögreglan í Watauga fékk tilkynningu um atvikið og leitaði að einstaklingnum en án árangurs. Ekki er vitað hver hann er eða hvers vegna hann ákvað að mæta að heimili ókunnugra í þessum klæðnaði til að borða banana fyrir framan myndavélina.
Lögregla segir þó ekkert benda til þess að viðkomandi hafi gerst sekur um lögbrot.
Í yfirlýsingu lögreglunnar kemur fram að klæðnaðurinn og valið á snarlinu kunni að hafa vakið athygli en hvorugt virðist brjóta gegn lögum. Þá tók lögreglan fram að þótt ekki væri hægt að útskýra búninginn, bananann eða pólitíska yfirbragðið væri furðuleg hegðun ein og sér ekki refsiverð.
Lögreglan segir engu að síður mikilvægt að íbúar tilkynni áfram um grunsamlega hegðun, jafnvel þegar aðstæður séu jafn óvenjulegar og í þessu tilviki.
