
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, gagnrýndi ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur harðlega fyrir lítinn fjölda stjórnarfrumvarpa og kallaði eftir því að frumvarp um lagareldi og fiskeldi yrði lagt fram á Alþingi.
Sigurður Ingi ræddi störf þingsins undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær. Hann benti á að þingfundir síðustu vikna hefðu almennt verið stuttir og að tiltölulega fá stjórnarfrumvörp væru komin fram.
Að sögn Sigurðar Inga hafa aðeins 29 mál komið frá ríkisstjórninni á yfirstandandi löggjafarþingi, að fjárlögum meðtöldum, auk fimm þingsályktunartillagna. Hann sagði að umræður um löggjafarmál hefðu því almennt gengið hratt fyrir sig.
Sigurður Ingi beindi sérstaklega sjónum að lagareldisfrumvarpinu og gagnrýndi þau rök að málið væri svo umfangsmikið að erfitt væri að koma því fyrir á dagskrá þingsins.
„Ég spyr, frú forseti: Frá hverju er verið að taka tíma?“ sagði Sigurður Ingi.
Hann sagði fiskeldi mikilvæga atvinnugrein sem gæti skilað um 70 milljörðum króna í útflutningstekjur og væri talið eitt af stærri tækifærum þjóðarinnar til aukinnar verðmætasköpunar. Miklar fjárfestingar væru fyrirhugaðar bæði í landeldi og sjókvíaeldi en óvissa um lagaumhverfið héldi aftur af greininni.
Sigurður Ingi sagði ekki standast að skortur á tíma Alþingis kæmi í veg fyrir að málið yrði tekið fyrir. Hann skoraði á forseta Alþingis og atvinnuveganefnd að beita sér fyrir því að málið yrði tekið upp ef ríkisstjórnin legði það ekki fram.
„Ég spyr aftur, frú forseti: Frá hverju tekur þetta mál tíma hér í þinginu?“ sagði Sigurður Ingi.
Sigurður Ingi benti einnig á að nefndin hefði aðeins eitt mál frá ríkisstjórninni til umfjöllunar í haust.
