
Karlmaður hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa sent stúlkunni kynferðisleg skilaboð í gegnum Snapchat á tímabilinu frá febrúar til maí 2023 og fyrir að hafa mælt sér mót við hana í þeim tilgangi að hafa við hana kynferðismök.
Ekki var ágreiningur um að maðurinn hefði átt í samskiptum af kynferðislegum toga við stúlkuna. Ágreiningurinn laut hins vegar meðal annars að því hvort hann hefði vitað hversu gömul hún var.
Stúlkan greindi lögreglu frá því að maðurinn hefði sent henni myndir af sér. Á sumar myndanna var skrifaður texti með lýsingum á kynferðislegum athöfnum, svo sem "Hvernig eg kyssi þig, stryk þer, held fast i hári, strýk lærunum og gríp í þau, snerti þig utan frá, verður blaut í gegn áður en eg tek þig ur g strengnum.", "Kann mjöög vel á snipin, hvenær og hvernig puttarnir fara inn og hreyfingarnar/Læt þig halda i mig a meðan, en ekki runka, bara svo þu finnir fyrir mer harðna yfir þer blotna og stynja". Einnig var texti með skírskotunum til peninga "Búa til svona cash rúm eins og í wolf of wallst" og mynd af húðflúruðum karlmanni liggjandi í rúmi með peningaseðla sér við hlið. Ein myndanna með húðflúraðri öxl innihélt textann "Svo næst sæki eg þig a i8 til að halla þer fram á hoodið"
Þá hefði hann óskað eftir myndum frá henni, viljað hitta hana og meðal annars boðið henni á rúntinn. Þau hittust þó aldrei.
Maðurinn neitaði því að hafa vitað að stúlkan væri 14 ára þegar samskiptin áttu sér stað. Hann sagðist hafa talið hana vera 18 eða 19 ára og að hann hefði lokað á samskiptin þegar honum var greint frá raunverulegum aldri hennar.
Dómurinn taldi ákæruvaldið ekki hafa sýnt fram á, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að maðurinn hefði vitað um aldur stúlkunnar.
Við sönnunarmatið var meðal annars horft til ósamræmis í framburði stúlkunnar og vinkonu hennar um það hvenær og hvernig maðurinum hefði verið greint frá aldrinum. Stúlkan sagðist hafa skrifað að hún væri fædd árið 2008 en vinkonan sagðist hafa séð skilaboð þar sem stóð að hún væri 14 ára. Umrædd skilaboð voru ekki meðal þeirra gagna sem afhent voru lögreglu.
Dómurinn tók einnig til skoðunar hvort maðurinn hefði sýnt af sér saknæmt gáleysi með því að ganga ekki úr skugga um aldur stúlkunnar. Ekki var talið sannað að svo hefði verið. Stúlkan hafði ekki sent honum mynd af andliti sínu og dómurinn taldi samskiptin í heild ekki hafa gefið manninum sérstakt tilefni til að ætla að hún væri yngri en hann taldi.
Þá taldi dómurinn ekki sannað að maðurinn hefði mælt sér mót við stúlkuna í þeim tilgangi að eiga við hana kynferðismök, þótt hann hefði gefið í skyn að þau kynnu að hittast og lýst kynferðislegum fantasíum í því samhengi.
Maðurinn var því sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins. Miskabótakröfu stúlkunnar, að fjárhæð 1,5 milljónir króna, var vísað frá dómi.