
Jasmina Vajzovic gagnrýnir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, um innflytjendur og múslima. Elliði hafði sagt á Facebook óheftan straum innflytjenda, sérstaklega múslima, valda skaða.
Jasmina, sem er múslimi og Bosníaki, segir ummælin beinast að fólki en ekki aðeins ópersónulegum hópi.
„Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ spyr hún í færslu á Facebook.
„Ég er múslimi. Ég er líka móðir, amma, fyrrverandi varabæjarfulltrúi, stjórnandi, verkefnastjóri og stjórnarkona. Og margt fleira,“ skrifar hún og spyr jafnframt hvað börn hennar og fjölskylda hafi gert Íslandi.
Jasmina segir að á bak við orðið múslimar séu einstaklingar sem hafi ólíkar skoðanir, líf og reynslu. Hún hafi sjálf byggt upp líf sitt á Íslandi, menntað sig, alið upp börn og tekið virkan þátt í lýðræðinu. Hún hafi meðal annars setið sem varabæjarfulltrúi, starfað í nefndum og komið að stofnun íþróttadeilda og félaga.
„Hvenær fá þessi verk meira vægi en sú staðreynd að ég er múslimi?“ spyr hún.
Elliði hefur síðar sagt á Bylgjunni gagnrýni sína beinast að innflytjendastefnu og hugmyndum sem byggi á trúarlegum kreddum eða venjum sem gangi gegn jafnrétti og frelsi.
Jasmina segir þá skýringu ekki nægja og kallar eftir nákvæmari rökstuðningi.
„Hvaða ákvarðanir? Hvaða hegðun? Hvaða gögn styðja hvaða niðurstöðu?“ spyr hún og segir orðið múslimar ekki svara neinni þessara spurninga.
Hún tekur fram að gagnrýna eigi trúarbrögð, kúgun, kvenfyrirlitningu, ofbeldi og öfgahyggju.
„Gerið kröfur til fólks og látið einstaklinga bera ábyrgð á eigin gjörðum. Ég geri það líka,“ skrifar Jasmina.
Hún segist taka orðræðunni persónulega og gerir þá kröfu til fólks að samfélagsleg vandamál séu rædd án þess að heilir trúarhópar séu gerðir tortryggilegir.
